FundarsalirVeislusalirSýningarsalirÍþróttasalirVeitingar

Salir.is er upplýsingaveita fyrir þá sem eru að leita að sal fyrir mismunandi tilefni.

Ert þú með góðan sal eða aðra þjónustu? Skráðu þig hér eða hafðu samband í síma 699 7231.

Nánari upplýsingar.

Undirvefir
  • Fundarsalir
  • Veislusalir
  • Sýningarsalir
  • Íþróttasalir
  • Veitingar


  • Tækjaleigur
    SENSE
    Tækniþjónusta og leiga á búnaði fyrir veislur, sýningar, ráðstefnur, fundi og tónleika. Meira.

    EXTON
    Leiga og sala á búnaði til nota við ráðstefnur, vörusýningar, tónleika, veislur og margt fleira. Meira.


    Gagnlegt
    "Ráðstefna ætti að vera eins og leikhús. Við erum í sjóbissness."
    - C.L. Finkel

    Tæknilausnir fyrir mannfagnaði
    Vegna ljós-, hljóð- eða myndbúnaðar.
    Undirbúningur og skipulag funda
    Minnislistar og önnur góð ráð.
    Að gera fundi skemmtilegri
    Til að halda athygli þátttakenda.

    Tenglar:
    Ráðstefnuskrifstofa Íslands
    Ferðamálaráð Íslands
    Harvard Business Online
    Meeting Professionals Intern.






    Að gera fundina skemmtilega

    Staðsetning
    Oft er nauðsynlegt að stíga út úr daglegu amstri til þess að skoða hlutina frá fjarlægð. Til þess að tryggja að þátttakendur séu ótruflaðir og einbeittir getur verið gott að leigja fundarherbergi annarstaðar en þar sem starfsemin fer vanalega fram.

    Skoðaðu fundarsalina á þessum vef. Þar má finna fundaraðstöðu í öllum stærðum og gerðum.

    Tímarammi og hlé
    "Við stöndum ekki upp fyrr en þetta er klárað" er ekki gott viðmið við skipulagningu funda. Rannsóknir sýna að flestir halda ekki fullri einbeitingu í meira en 20 mínútur í senn.

    Með því að breyta framsetningarmáta af og til og brjóta þannig fundinn upp í einingar er hægt að lengja þennan tíma. Fundir ættu þó aldrei að vera lengur en einn og hálfur tími án pásu.

    10-15 mínútur sem teknar eru frá til þess að þátttakendur geti hvílst og endurskipulagt sig gerir fundina ánægjulegri og afkastameiri.

    Matur og hressing
    Svangt fólk vinnur ekki vel. Fólk hefur misjafnar þarfir þegar kemur að hressingu, tíðni þeirra og tegund. Til þess að tryggja að allir geti einbeitt sér að efni fundarins er best að búið sé að skipuleggja hressingu fyrir styttri fundi og mat fyrir þá lengri.

    Skoðaðu veitingar til að komast í samband við aðila sem sjá um slíkt.

    Skemmtun
    Á Íslandi eru ótrúlegir möguleikar til spennandi hvataferða sem hrista hópinn saman. Að kynnast nýju samstarfsfólki og uppgötva nýjar hliðar á gömlu félögunum getur virkað sem vítamínsprauta á starfið.

    Skoðaðu hvataferðir til þess að komast í samband við aðila sem skipuleggja slíkt.


    Endurskoðum ráðstefnur
    eftir C.L. Finkel (á ensku)
    "Við erum samfélag umkringt áreiti á skynfærin, innblásið sjónvarpi, kvikmyndum og söngleikjum. Tileinkaðu þér nálgun þessara miðla við uppsetningu ráðstefna."
    Meira.

    Gagnrýni á PowerPoint
    eftir Edward R. Tufte
    "Powerpoint er hraðvirkur flokkari og framsetningarmáti mynda. En í stað þess að bæta framsetningu hefur forritið yfirtekið framsetninguna og kemur í staðinn fyrir hana."
    Meira.
                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                   

    Salir.is: www.salir.is - salir@salir.is - Öldugötu 29, sími 699 7231.