FundarsalirVeislusalirSýningarsalirÍþróttasalirVeitingar

Salir.is er upplýsingaveita fyrir þá sem eru að leita að sal fyrir mismunandi tilefni.

Ert þú með góðan sal eða aðra þjónustu? Skráðu þig hér eða hafðu samband í síma 699 7231.

Nánari upplýsingar.

Undirvefir
  • Fundarsalir
  • Veislusalir
  • Sýningarsalir
  • Íþróttasalir
  • Veitingar


  • Tækjaleigur
    SENSE
    Tækniþjónusta og leiga á búnaði fyrir veislur, sýningar, ráðstefnur, fundi og tónleika. Meira.

    EXTON
    Leiga og sala á búnaði til nota við ráðstefnur, vörusýningar, tónleika, veislur og margt fleira. Meira.


    Gagnlegt
    "Ráðstefna ætti að vera eins og leikhús. Við erum í sjóbissness."
    - C.L. Finkel

    Tæknilausnir fyrir mannfagnaði
    Vegna ljós-, hljóð- eða myndbúnaðar.
    Undirbúningur og skipulag funda
    Minnislistar og önnur góð ráð.
    Að gera fundi skemmtilegri
    Til að halda athygli þátttakenda.

    Tenglar:
    Ráðstefnuskrifstofa Íslands
    Ferðamálaráð Íslands
    Harvard Business Online
    Meeting Professionals Intern.






    Tæknilausnir fyrir mannfagnaði

    Á mannamótum kemur iðulega upp sú staða að flytja þarf viðstöddum einhvern boðskap, koma afþreyingarefni til skila eða skapa stemningu með ljósi, hljóði eða mynd. Stundum er hægt að gera þetta án nokkurrar tæknilegrar aðstoðar svo sem með almennu töluðu máli eða áslætti hljóðfæra og því um líkt en oft er slíkt ómögulegt. Kemur þar ýmislegt til svo sem stærð hópsins sem ná á til, nú eða eðli þess rýmis eða svæðis sem um er að ræða. Þá er þess og að gæta að kröfur almennings um tæknileg gæði hafa á seinni árum mjög aukist, svo mjög að má nú almennt gera ráð að gerð sé krafa um t.d. að heyra til ræðumanns nú eða sjá óbrenglaða mynd og heyra óbjagaða tónlist. Þá þykir og gott að sjá til flytjanda eða þeirra verka sem ætlunin er að sýna.

    Framangreind atriði, samfara hraðri þróun tæknibúnaðar, hefur gert það af verkum að sífellt flóknara verður fyrir hinn almenna skipuleggjanda mannamóta að átta sig á þeim tæknilegu lausnum sem viðeigandi eru hverju sinni. Því verður æ algengara að leitað sé til sérhæfðra tækni og þjónustufyrirtækja um lausn.

    Exton hefur um árabil verið leiðandi á þessu sviði og reka nú kraftmikla þjónustu- , sölu- og leigu- starfsemi þar sem almenningur jafnt sem stofnanir og fyrirtæki getur leitað ráðgjafar og lausna á tæknilegum úrlausnarefnum. Hjá Exton er hægt að kaupa eða leigja til lengri eða skemmri tíma hverskonar búnað í þessu sambandi. Hljóðkerfi stór og smá, ljósabúnað hverskonar, sviðspalla eftir þörfum, ræðupúlt, skjávarpa, plasmasjónvörp, myndspilunarkerfi og svo mætti lengi telja er allt fáanlegt hjá Exton. Exton skilgreinir sig þó fyrst og fremst sem þjónustufyritæki á sviði tæknilegra launa með það að höfuðhlutverki að sinna þörfum viðskiptavina sinna fyrir tæknilausnir á sem áhrifamestan , öruggastan og hagkvæmastan hátt.

    Í stærri verkum er eðlilegt að kalla tæknimann á staðinn svo meta megi aðstæður og gera tilboð í framhaldinu. En fyrir minni uppákomur á slíkt að vera óþarfi þar sem hægt er að leigja eða kaupa ýmsan notendavænan búnað sem auðvelt á að vera að koma fyrir og gangsetja. Lykilatriði í þessu sambandi er þó að meta aðstæður rétt til þess að viðeigandi búnaður sé valinn. Ef farið er yfir eftirfarandi gátlista áður en haft er samband við tæknimenn Exton þá aukast líkur þess all nokkuð að hægt verði að finna réttu lausnina fyrir þig hratt og örugglega. Góða skemmtun.

    Listi yfir nokkur tæknileg atriði sem gott er að hafa farið yfir áður en leitað er til tæknimanns varðandi hljóðflutning:

    1. Hvaða rými er um að ræða? eða verður uppákoman utandyra?
    2. Fjöldi gesta / áheyrenda?
    3. Hver er dagskráin / atriðin?
    i. Tónlistaratriði / skemmtiatriði, hvernig?
    ii. Ræður?
    iii. Plötusnúður?
    iv. Hljómsveit, hve stór?
    4. Þarf þráðlausa hljóðnema?
    5. Viltu fá tæknimenn til að setja upp búnaðinn og stýra honum?

    Sömu atriði eiga á margan hátt við um ljós og myndspilun:

    1. Rétt er að hafa í huga hvaða rými er um að ræða og hversu margir eiga eða þurfa að sjá til.
    2. Þá er og að átta sig á því í hvaða tilgangi ljósabúnaður er nauðsynlegur t.d. hvort skapa á stemningu með þægilegri umhverfislýsingu eða hvort lýsa á atriði á sviði?
    3. Er svið á staðnum? Eða þarf að leigja það sérstaklega?
    4. Hver er lofthæð ef um innandyra uppákomu er að ræða?
    5. Hvernig er aðgangur að rafmagni?
    6. Ef tengja á tölvubúnað sem er til staðar við skjávarpa þá er rétt að vita hvernig tengingar er um að ræða.

    Endurskoðum ráðstefnur
    eftir C.L. Finkel (á ensku)
    "Við erum samfélag umkringt áreiti á skynfærin, innblásið sjónvarpi, kvikmyndum og söngleikjum. Tileinkaðu þér nálgun þessara miðla við uppsetningu ráðstefna."
    Meira.

    Gagnrýni á PowerPoint
    eftir Edward R. Tufte
    "Powerpoint er hraðvirkur flokkari og framsetningarmáti mynda. En í stað þess að bæta framsetningu hefur forritið yfirtekið framsetninguna og kemur í staðinn fyrir hana."
    Meira.
                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                   

    Salir.is: www.salir.is - salir@salir.is - Öldugötu 29, sími 699 7231.