Edda veislusalur

Fyrir hátíðleg tilefni og veislumóttökur

60 manns í sæti
100 manns í standandi veislur og viðburði
Hægt að opna út á verönd framan við salinn
Kaffihúsið Ýmir sér um kaffiveitingar
Veisluþjónustan Ýmir sér um matar- og vínveitingar
Rúmgott forrými fyrir móttökur
Ræðupúlt, hljóðkerfi og stór skjár
Gott aðgengi


Nánari upplýsingar

Edda - fyrir móttökur, veislur og viðburði
Milli Þjóðarbókhlöðunnar og Háskóla Íslands við Hagatorg er Edda, hús íslenskunnar staðsett.
Edda er nýtt menningarhús sem hlaut Hönnunarverðlaun 2024.

Þar fer fram starfsemi Árnastofnunar og Háskóla Íslands ásamt fjölbreyttri menningarstarfsemi. Má þar nefna sýninguna Heimur í orðum sem heldur utan um íslensku miðaldahandritin, dýrgripi íslensk þjóðararfs.

Í Eddu er fullbúinn ráðstefnusalur ásamt smærri fundarsölum og góð aðstaða fyrir móttökur og veislur.

Veislusalur Eddu
Húsið er einstaklega fallegt, bogadregin form og fallegt flæði birtu. Framan við húsið er tjörn og hægt er ganga beint úr salnum út á steinverönd sem byggð er út í tjörnina.

Á kvöldin er húsið lýst upp sem gerir aðkomu einstaklega skemmtilega.

Veislusalurinn er í anddyri hússins og þar er rúmgott opið rými þar sem gestir geta safnast saman áður en borðhald hefst.

Hægt er að stúka veislusalinn af með glerveggjum eða opna salinn upp og nýta aukið pláss fyrir ræðupúlt eða tónlistarfólk og stóran flatskjá meðan á borðhaldi stendur.

Í salnum eru 10 hringborð fyrir 60 manns. Einnig er hægt að blanda saman ferköntuðum borðum og hringborðum eftir óskum. Dúkar eru leigðir sér.

Opið rými framan við salinn
Í standandi veislur og móttökur er hægt að vera með smærri ferkönntuð borð og nýta opið rými framan við salinn og rúmar þá aðstaðan allt að 100 manns.

Ýmir veislusþjónusta
Á daginn er kaffihúsið Ýmir opið fyrir gesti hússins og þar er boðið upp á úrval kaffi- og matarveitinga.

Veisluþjónustan Ýmir sér um allar matarveitingar og vínveitingar í húsinu. Vinsamlega bókið veitingar í síma 8200016 eða netfangið thordurbraga@icloud.com

Fyrir hátíðleg tilefni og veislumóttökur
Veislusalurinn í Eddu er leigður út fyrir hátíðleg tilefni og veislumóttökur, enda sérlega glæsilegur salur í einstöku húsi. Salurinn hentar fyrir fínni veislur þar sem setið er til borðs eða standandi veislur þar sem boðið er upp á pinnamat og léttar veitingar.

Brúðkaupsveislur, fermingarveislur, erfidrykkjur, útskrifarveislur, menningarviðburði og fyrirtækjaviðburði.

Salir fyrir fundi og ráðstefnur
Í Eddu er glæsilegur salur fyrir fundi, fyrirlestra og ráðstefnur. Salurinn tekur 98 manns í sæti sem röðuð eru upp í boga í aflíðandi halla þannig að allir sjái vel. Hér má skoða fundarsalinn

©www.salir.is - afritun og endurbirting óheimil.



Edda veislusalur
Arngrímsgata 5 107 Reykjavík
Sími: Birta símanúmer


Vinsamlega látið vita að upplýsingarnar koma frá á salir.is þegar haft er samband.

Kort

Fyrirspurn um þessa þjónustu

Hér getur þú spurst fyrir um bókanir, verð og nánari upplýsingar