Edda, hús íslenskunnar
Milli Þjóðarbókhlöðunnar og Háskóla Íslands við Hagatorg er Edda, hús íslenskunnar staðsett. Edda er nýtt menningarhús sem hlaut Hönnunarverðlaun 2024. Þar fer fram starfsemi Árnastofnunar og Háskóla Íslands ásamt fjölbreyttri menningarstarfsemi. Má þar nefna sýninguna Heimur í orðum sem heldur utan um íslensku miðaldahandritin, dýrgripi íslensk þjóðararfs.
Salir fyrir fundi og ráðstefnur
Í Eddu er glæsilegur salur fyrir fundi, fyrirlestra og ráðstefnur. Salurinn tekur 98 manns í sæti sem röðuð eru upp í boga í aflíðandi halla þannig að allir sjái vel. Á sætunum eru fellanleg vinnuborð.
Í salnum er hljóðkerfi og skjávarpi ásamt einföldum streymisbúnaði.
Fremst í salnum er borð fyrir fundarstjórn með rafstýrðu ræðupúlti sem hægt er að hækka og lækka eftir þörfum.
Hljóðnemi er á ræðupúlti ásamt því að vera með tvo lausa hljóðnema og einn þráðlausan hljóðnema í nælu.
Aðstaða fyrir móttökur og veislur
Framan við salinn er góð aðstaða fyrir móttökur, þar sem kaffihúsið Ýmir sér um kaffiveitingar og veisluföng fyrir viðburði.
Kaffihúsið er opið alla daga vikunnar en hægt er að panta kaffiveitingar og mat eftir því sem hentar hverju sinni. Vinsamlega bókið veitingar í síma 820 0016 eða netfangið thordurbraga@icloud.com
Edda hentar einstaklega vel fyrir ráðstefnur, fyrirlestra, málþing, námskeið og menningarviðburði.









