Fundarsalur Jarðhitasýningin

Einstakt umhverfi sem veitir innblástur

45 manns við langborð
60 manns í leikhúsuppröðun
Skjávarpi og sýningartjald
Hljóðkerfi og þráðlausir hljóðnemar
Fjarfundarbúnaður (Teams)
Veisluþjónusta og vínveitingar
Hægt að taka með eigin matarveitingar
Hægt að opna út á þaksvalir
Gott aðgengi og næg bílastæði
Leiðsögn um sýninguna fyrir hópa


Nánari upplýsingar

Fundarsalur
Á Jarðhitasýningunni er fundarsalur fyrir þá sem vilja gott næði í björtu og fallegu rými með þaksvölum.

Fundarsalnum er hægt að raða upp með hringborðum eða langborðum sem tekur um 45 manns við borð. Einnig er hægt að stilla upp í leikhúsuppröðun og rúmar salurinn þá 60 manns í sæti.

Úr salnum er hægt að opna út á stórar þaksvalir.

Í salnum er skjávarpi og sýningartjald og fallegt ræðupúlt klætt mosa. Þar er skjávarpi og sýningartjald ásamt hljóðkerfi og þráðlausum hljóðnemum. Í salnum er fjarfundarbúnaður (Teams) fyrir streymi.

Skipulagning og veisluþjónusta
Vínveitingaleyfi er í húsinu og veisluþjónusta sem sér um kaffiveitingar eða matarveitingar. En einnig er hægt að nýta sér utanaðkomandi veisluþjónustu ef óskað er.

Starfsfólk býr yfir fjölbreyttri reynslu á að skipuleggja fundi, viðburði og móttökur. Boðið er upp á leiðsögn um sýninguna fyrir hópa.

Fundarsalurinn hentar vel fyrir fundi, fyrirlestra og námskeið. 

Jarðhitasýningin
Jarðhitasýningin er staðsett í Hellisheiðarvirkjun við Hengilinn í um 25 kílómetra fjarlægð frá Reykjavík.

Jarðhitasýningin býður upp á fjölbreytt rými fyrir veislur, fundi, ráðstefnur, kynningar og viðburði. Þar sameinast stórbrotin náttúra, orkuvinnsla og góður aðbúnaður í einstöku umhverfi.

Glerbyggingin
Glerbyggingin skiptist upp í móttökurými á neðri hæð og opið rými og inni svalir á á efri hæðinni.

Stór stigi tengir hæðirnar saman og er notaður sem sæti fyrir allt að 100 manns framan við sýningartjald. En ofan við stigann er annað stórt sýningartjald og skjávarpi sem vísar inn í rýmið sem hægt er að horfa á úr salnum.

Ofan við móttökurýmið eru stórar inni svalir og opið rými. Þegar efrihæðin er nýtt rúmar húsið allt um 350 manns í standandi viðburði.

Frá svölum er stórfenglegt útsýni út á hraunbreiðuna. Þar er hægt að raða upp standborðum fyrir veitingar.

Innst í opna rýminu á efrihæð er opið fyrirlestrarými sem tekur 120 manns í sæti og þar við hliðina fundarsalur sem tekur 45 manns við borð.

Húsið hentar því vel fyrir kynningar, móttökur, ráðstefnur og veislur í umhverfi sem er alveg einstakt.

Fundarsalur Jarðhitasýningin
Hellisheiðarvirkjun 816 Ölfus
Sími: Birta símanúmer


Vinsamlega látið vita að upplýsingarnar koma frá á salir.is þegar haft er samband.

Kort

Fyrirspurn um þessa þjónustu

Hér getur þú spurst fyrir um bókanir, verð og nánari upplýsingar