Jarðhitasýningin er staðsett í Hellisheiðarvirkjun við Hengilinn í um 25 kílómetra fjarlægð frá Reykjavík.
Jarðhitasýningin býður upp á fjölbreytt rými fyrir veislur, fundi, ráðstefnur, kynningar og viðburði. Þar sameinast stórbrotin náttúra, orkuvinnsla og góður aðbúnaður í einstöku umhverfi.
Móttökurými á á neðri hæð og opið rými á efri hæð
Glerbyggingin skiptist upp í móttökurými á neðri hæð og opið rými og inni svalir á á efri hæðinni.
Stór stigi tengir hæðirnar saman og er notaður sem sæti fyrir allt að 100 manns framan við sýningartjald. En ofan við stigann er annað stórt sýningartjald og skjávarpi sem vísar inn í rýmið sem hægt er að horfa á úr salnum.
Ofan við móttökurýmið eru stórar inni svalir og opið rými. Þegar efrihæðin er nýtt rúmar húsið allt um 350 manns í standandi viðburði.
Frá svölum er stórfenglegt útsýni út á hraunbreiðuna. Þar er hægt að raða upp standborðum fyrir veitingar.
Fundarsalur og fyrirlestrarými
Innst í opna rýminu á efrihæð er fyrirlestrarými sem tekur 120 manns í sæti og þar við hliðina fundarsalur sem tekur 45 manns við borð.
Skipulagning og veisluþjónusta
Vínveitingaleyfi er í húsinu og veisluþjónusta sem sér um kaffiveitingar eða matarveitingar. En einnig er hægt að nýta sér utanaðkomandi veisluþjónustu ef óskað er.
Starfsfólk býr yfir fjölbreyttri reynslu á að skipuleggja fundi, viðburði og móttökur. Boðið er upp á leiðsögn um sýninguna fyrir hópa.
Húsið hentar því vel fyrir kynningar, móttökur, ráðstefnur og veislur í umhverfi sem er alveg einstakt.












