Akademían Fundarsalir

Góður fundarsalur og fundarherbergi í miðbæ Reykjavíkur

50 manns í leikhús uppstillingu
16 manns við langborð
30 manns í skólastofu uppröðun
Sér fundarherbergi fyrir 16 manns
Eldhús fyrir kaffiveitingar
Stór skjár
Tússtafla


Nánari upplýsingar

Akademían er bjartur og fallegur fundarsalur og fundarherbergi í miðbæ Reykjavíkur. Salurinn er á þriðju hæð og gengið er inn að Hafnarstræti 5.

Húsnæðið er allt nýuppgert með fallegu anddyri og stigagangi og rúmgóðri lyftu.

Í salnum eru borð og stólar sem hægt er að raða upp á mismunandi hátt, til dæmis sem langborð fyrir 16 manns, skólastofu uppröðun fyrir 30 manns, leikhúsuppröðun fyrir 50 manns.

Í Akademíunni er móttökueldhús með ísskáp, uppþvottavél og aðstöðu til að hella upp á kaffi. Salernisaðstaða við innganginn í salinn.

Við innganginn í salinn er einnig gott fundarherbergi með langborði fyrir 16 manns. Fundarherbergið leigist sér.

Salurinn er leigður út án veitinga, en mögulegt er að panta veitingar frá einhverjum af fjölmörgum veitingastöðum í kring og vera til dæmis með góðan hádegisfund í góðu næði.

Akademían hentar vel fyrir þá sem vilja halda fundi, námskeið eða kennslu í góðu næði í miðbæ Reykjavíkur.



Akademían Fundarsalir
Hafnarstræti 5, 101 Reykjavík
Sími: Birta símanúmer


Vinsamlega látið vita að upplýsingarnar koma frá á salir.is þegar haft er samband.

Kort

Fyrirspurn um þessa þjónustu

Hér getur þú spurst fyrir um bókanir, verð og nánari upplýsingar