Víkin - Sjóminjasafnið í Reykjavík hefur uppá að bjóða rúmgóðan og bjartan veislusal. Fallegt útsýni er yfir Reykjavíkurhöfn enda er húsið í raun byggt út yfir sjóinn.
Anddyri sjóminjasafnsins er rúmgott og aðgengi frá götu er gott. Því getur anddyrið eitt sér hentað fyrir stórar móttökur.
Úr salnum er hægt að ganga út á bryggju framan við salinn og þar er hægt að hafa stóla og borð þegar vel veðrar. Einnig er mögulegt að ganga úr salnum inn í minni sal sem getur nýst fyrir hverskyns sýningar eða fundi.
Í salnum er gott framreiðslueldhús og bar.
Göngustígur liggur frá salnum meðfram sjónum að miðbæ Reykjavíkur.
Salurinn hentar vel fyrir Árshátíðir, brúðkaup, afmæli, erfidrykkjur, fermingarveislur, móttökur og fundi.
Kokkurinn veisluþjónusta sér um allar veitingar fyrir salinn


