Knattspyrnufélagið Valur býður uppá fallega veislusali við miðbæ Reykjavíkur. Salina er hægt að sníða að þörfum hvers og eins og geta því hentað fyrir stóra jafnt sem smáa viðburði. Boðið er uppá sali sem henta fyrir viðburði fyrir 40 til 3.600 gesti og býr starfsfólk að mikilli reynslu af viðburðarhaldi.
Veislusalir Vals eru þrír samliggjandi salir á 2. hæð íþróttahússins. Mögulegt er að sameina salina í einn stóran sal sem tekur þá um 300 manns til borðs og um 800 manns í standandi veislu. Einnig er hægt að skipta þeim upp í sjálfstæða sali.
Allir salirnir eru með einfalt hljóðkerfi fyrir ræður og fyrirlestra. Einnig er hægt að leigja öflugra hljóðkerfi fyrir tónlist og skemmtanahald. Píanó er í stærsta salnum og bar til að afgreiða vínveitingar.
Við hlið veislusalanna er fullkomið veislueldhús með öllum búnaði til að elda og framreiða mat. Skjávarpar eru í öllum sölum sem hægt er að samtengja, þar er einnig sýningartjald, þráðlausir hljóðnemar. Í stærsta salnum er svið, ræðupúlt og fatahengi. Gott hjólastólaaðgengi er í húsinu og næg bílastæði.
Á 3. hæð íþróttahússins er Lollastúka sem er 80 manna salur með útsýni yfir keppnisvöllinn.
Valsheimilið er með fullt vínveitingaleyfi. Leigutakar þurfa að kaupa áfengi af húsinu og er söluverð sanngjarnt. Leigutakar hafa ekki heimild til áfengissölu í veislusölunum aðeins til veitinga.
Valsheimilið er með fullt vínveitingaleyfi. Leigutakar þurfa að kaupa áfengi af húsinu og er söluverð sanngjarnt. Leigutakar hafa ekki heimild til áfengissölu í veislusölunum aðeins til veitinga.
Leigutakar geta komið með veislumat sem þeir óska að veita. Við leigu á veislusal þarf ávallt einnig að greiða laun a.m.k. eins starfsmanns hússins sem starfar í veislunni.
Við hlið íþróttahússins er Fjósið, ný endurbyggt félagsheimili Vals. Þar er í boði lúxus veislusalur sem er eingöngu leigður út í valdar veislur og aðeins með þjónustu. Áfengi og allar veitingar þarf að kaupa af rekstraraðila. Í Fjósinu er veislusalur fyrir 140 gesti í standandi veislu og fyrir 60-80 sitjandi gesti. Þar er að auki vegleg setustofa. Í Fjósinu eru sýningatjöld, lítið hljóðkerfi og nýtt rafmagnspíanó.
Stórviðburðir í Origohöllinni
Íþróttasalur Vals - Origohöllin er 2050 fm. að stærð og hægt er að að halda 3400 manna tónleika, 2200 manna sitjandi fundi, 1456 manns veislur með langborðum og 1.050 manna veislur með hringborðum.
Við þennan fjölda er hægt að bæta 200 gestum ef svalir hússins eru líka notaðar. Auðvelt er einnig að setja salinn upp miðað við 400-600 manna veislur.
Leiga á búnaði fyrir veislur. Við eigum langborð, hringborð, standborð og stóla, allt eftir umfangi og sniðið að þörfum hvers og eins. Við bjóðum einnig uppá dúka í mörgum litum og stólaklæði til að gera veisluna enn glæsilegri. Þá leigjum við út allan borðbúnað fyrir minni og stærri veislur.