Anddyrið og móttakan í Gamla bío hentar einstaklega vel fyrir standandi veislur, móttökur, fjölmiðlafundi og mannfagnaði.
Gengið er um aðal-inngang Gamlabíos gengum rúmgott andyri og inn í móttöku salinn. Þaðan er opið inn í hátíðarsalinn eða upp á Petersen svítuna.
Í anddyrinu eru tveir barir hljóðkerfi og möguleiki á að setja upp lítið svið sem og borð og stóla.
Þá er einnig tilvalið að bjóða upp á standandi veislur með smáréttum sem hinn landsfrægi kokkur Guðmundur Ragnarsson, töfrar fram sniðna að þínum þörfum.
Úr anddyrinu er hægt að ganga inn í hátíðarsalinn, upp á svalir eða taka lyftuna upp í Petersen svítuna.
Hið sögufræga og fallega hús í hjarta
Reykjavíkur, Gamla bíó, er um þessar mundir að ganga í gegnum endurnýjun
lífdaga. Umfangsmiklar framkvæmdir hafa staðið yfir til að betrumbæta
alla aðstöðu sem þjóna mun nútíma þörfum en um leið er haldið í
upprunalega hönnun og virðuleika. Þannig mun notagildi Gamla bíós aukast
til muna þar sem notkunarmöguleikar verða svo gott sem endalausir.
Með
tilkomu móttökueldhúss og samstarfi okkar við hinn landsþekkta kokk
Guðmund Ragnarsson, verður í fyrsta sinn hægt að bjóða upp á sitjandi
borðhald í Gamla bíói. Þá er einnig komin lyfta í húsið svo nú eiga
allir, óháð hreyfigetu, að komast á milli hæða.
Starfsfólk Gamla bíós veitir persónulega þjónustu og hlakkar til að heyra í þér!


