Flatarmál Fífunnar er 10.100 fermetrar. Húsið
er fulleinangrað og hiti er í gólfi þannig að hægt er að halda jöfnu
hitastigi c.a. 10 gráður á Celsíus sem er þægilegt til æfinga og keppni.
150 natríum-og kvikasilfur lampar lýsa upp húsið og þegar full lýsing er í húsinu er hún 500 lúx.
Hægt er að opna lúgur í lofti og á göflum til að loftræsta húsið.
Tengibygging
Í
Fífunni er glæsileg tengibygging með sætum við borð fyrir allt að 70
manns. Þar er einnig salernisaðstaða en klefar eru samnýttir með
íþróttahúsinu Smáranum. Í tengibyggingu er fundarherbergi þar sem hægt
er að komast í nettengingu. Aðgengi fyrir fatlaða er gott því bæði er
lyfta í húsinu og rafmagnsstýrðir hurðaropnarar í andyri.
Fífan
er miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu og stutt er í: sund í Kópavogslaug,
bíó og búðir í Smáralind og líkamsrækt í Sporthúsinu.
Næg bílastæði eru við Fífuna.
Nánari upplýsingar veitir Brynjar í síma 510-6407