Flatarmál Fífunnar er 10.100 fermetrar. Húsið
er fulleinangrað og hiti er í gólfi þannig að hægt er að halda jöfnu
hitastigi c.a. 10 gráður á Celsíus sem er þægilegt til æfinga og keppni.
150 natríum-og kvikasilfur lampar lýsa upp húsið og þegar full lýsing er í húsinu er hún 500 lúx.
Hægt er að opna lúgur í lofti og á göflum til að loftræsta húsið.
Knattspyrnuaðstaðan
Knattspyrnuvöllurinn
er 105x68 m og er lagður gervigrasi frá Polytan af svokallaðri 3.
kynslóð gervigrass, fyllt með sandi og gúmmíi til að líkja eftir
eiginleikum venjulegs grass.
Knattspyrnuaðstöðunni er hægt að skipta í 4
hluta og geta hópar, fyrirtæki og íþróttafélög leigt ¼, ½ eða heilan
völl undir æfingar og keppni. Nóg er af mörkum því 8 minnibolta mörk og
4 stór mörk eru í Fífunni. Frí lofthæð yfir hliðarlínum
knattspyrnuvallarins er 7.20 m og um 13.m yfir miðjum vellinum.
Frjálsíþróttaaðstaðan
Frjálsíþróttaaðstaðan
skiptist í fjórar 100 m hlaupabrautir og sex 60 m hlaupabrautir ásamt
langstökks- og stangarstökksaðstöðu. Leigu á frjálsíþróttaaðstöðunni er
skipt í tvo hluta og er hægt að leigja annan hlutann eða báða. Annar
hlutinn samanstendur af 60 m hlaupabraut, auk aðstöðu til langstökks og
stangarstökks. Hinn hlutinn er 100 m hlaupabraut.
Frjálsíþróttaaðstaðan er lögð 13 mm þykku gerviefni frá Polytan.
Tengibygging
Í
Fífunni er glæsileg tengibygging með sætum við borð fyrir allt að 70
manns. Þar er einnig salernisaðstaða en klefar eru samnýttir með
íþróttahúsinu Smáranum. Í tengibyggingu er fundarherbergi þar sem hægt
er að komast í nettengingu. Aðgengi fyrir fatlaða er gott því bæði er
lyfta í húsinu og rafmagnsstýrðir hurðaropnarar í andyri.
Fífan
er miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu og stutt er í: sund í Kópavogslaug,
bíó og búðir í Smáralind og líkamsrækt í Sporthúsinu.
Næg bílastæði eru við Fífuna.
