Hótel Rangá veislusalur

Glæsileg aðstaða, á 4 stjörnu lúxus sveitahóteli

52 manns kvöldverð
60 manns skólastofu uppstilling
26 manns "board room"
33 manns u-borð
72 manns bíó uppstilling


Nánari upplýsingar
Fundaraðstaða

Hótel Rangá býður gestum sínum upp á þægilega Veislu eða fundaaðstöðu á annarri hæð hótelsins.

Notalegt andrúmsloft aðalsmerki Hótel Rangár. Fyrir fundarhöld, fjölskyldusamkomur og hverskonar hátíðahöld fyrir minni og meðalstóra hópa.

Starfsfólkið er þekkt fyrir lipurð og frábæra þjónustulund og mun það ásamt einstöku umhverfi gera hvers konar atburði ógleymanlega. Hótelið býður upp á sérstakan tengil til að auðvelda samskipti og skipulagningu funda ásamt aðstoð við val á afþreyingu í nágrenni hótelsins.

Öll aðstaðan er útbúin nýjustu tækjum og eru veggir og loft viðarklædd sem gefur hlýlegt og vinalegt andrúmsloft. Einnig getum við boðið upp á fundaaðstöðu í svítunum okkar og stærri herbergjum (Deluxe).
Hótelið býður einnig þráðlaust net gestum að kostnaðarlausu.

Um Hótel Rangá

Hótel Rangá er fjögurra stjörnu lúxus hótel, staðsett á Suðurlandi mitt á milli Hellu og Hvolsvallar. Útsýnið frá hótelinu er er stórkostlegt, Hekla blasir við til norðurs, síðan er fjallahringurinn til austurs og norðausturs, í suðaustri trónir svo Eyjafjallajökull og Vestmannaeyjar í suðri.  Hótelið er meðlimur í glæsilegum alþjóðlegum hótelsamtökum „The Special Hotels of the World“.  Margir þekktir einstaklingar jafnt innlendir sem erlendir hafa heimsótt okkur, brúðhjón eyða gjarnan brúðkaupsnóttinni hjá okkur enda vinsæll áningastaður vandlátra ferðalanga.

Hótel Rangá var stækkað árið 2007 og svo aftur 2008 og eru nú 52 herbergi í boði, þ.m.t. fjórar Royal svítur, fjórar Junior svítur og eru sjö af þeim svítum innréttaðar í anda heimsálfanna sjö. Við köllum þessar svítur „The World Pavillion“  enda er hægt að fara umhverfis jörðina á sjö dögum hér á Hótel Rangá.  Auk þess bjóðum við upp á 24 Superior herbergi og 20 Deluxe herbergi, öll þægileg og vel útbúin.

Veitingastaður Hótel Rangár er löngu orðinn landsþekktur fyrir frábæran mat og gott úrval gæðavína. Önnur aðstaða á hótelinu er mjög góð, setustofur uppi og niðri, glæsilegur bar, tvö nuddherbergi, leikjaherbergi og heitir útipottar. Yfir vetrartímann er Hótel Rangá vinsæll áningastaður þeirra sem vilja skoða norðurljósin.

 Hótel Rangá býður glæsileika og góða þjónustu:
• Metnaðarfull þjónusta, lúxus og hvíld.
• Eina 4 stjörnu hótelið á Suðurlandi
• Mikil þjónustulund og fagfólk við störfin.
• Hótelið var kosið „besta sveitahótelið á Íslandi árið 2004“ af Octopus Travel
• Hótelið var kosið Great Wedding destination
(Frábær staður fyrir hveitibrauðsdagana!) í alheimsskeppni meðal sjónvarpsáhorfenda GMTV í London.
• Rómantískur staður fyrir brúðkaupsveislur, brúðkaupsnóttina og aðrar hátíðlegar stundir í fjölskyldunni.
• Hlýleg herbergi - öll með baðkari.
• Rómaður veitingastaður af bestu gerð, með útsýni yfir Eystri - Rangá.
• Nýr matseðill í hverjum mánuði - fer eftir árstíðum og fleiru.
• Aðeins er rúmur klukkutíma akstur til Reykjavíkur, en við erum við þjóðveg eitt.
• Heitir pottar utandyra og sér verönd við hvert herbergi.
• Bjóðum upp á nudd og slökun.
• Frábær staðsetning fyrir fundi og ráðstefnur, vinnufundi, sameflingu starfsfólks.
• Frítt háhraða internet samband.
• Mjög margt áhugavert til að skoða er innan seilingar.
• Erum þekkt fyrir góða aðstöðu til að skoða norðurljósin, þegar þau sjást.
• Útvegum stangaveiðileyfi, golf, hestaferðir, river rafting, vélsleðaferðir, fjórhjólaferðir (ATV) eða jeppaferði

Hótel Rangá veislusalur
Hotel Ranga 851 Hella
Sími: Birta símanúmer


Vinsamlega látið vita að upplýsingarnar koma frá á salir.is þegar haft er samband.

Kort

View Larger Map

Fyrirspurn um þessa þjónustu

Hér getur þú spurst fyrir um bókanir, verð og nánari upplýsingar