Nauthóll - Sjónarhóll fundarsalur

Fallegur salur við rætur Öskjuhlíðar

Óviðjafnanlegt útsýni yfir hafið
Úrvalslið matreiðslu- og framleiðslumanna
Fjölbreyttir notkunarmöguleikar
Svið, hágæða hljóðkerfi, skjávarpi og ræðupúlt
Rúmar um 100 gesti til borðs og allt að 250 standandi


Nánari upplýsingar
Sjónarhóll er nýr og glæsilegur veislu- og fundarsalur sem Nauthóll býður til leigu. Hann er staðsettur við rætur Öskjuhlíðar og skartar óviðjafnanlegu útsýni yfir hafið. Úrvalslið matreiðslu- og framreiðslumanna okkar sjá um að gera viðburðinn þinn ógleymanlegan.

Sjónarhóll býður upp á fjölbreytta notkunarmöguleika. Hann er tilvalinn til hvers kyns veisluhalda en hentar einnig vel fyrir ráðstefnur og fundi. Salurinn rúmar um 100 gesti til borðs og allt að 250 gesti í standandi veislu.

Sjónarhóll er vel tækjum búinn, þar er t.a.m. svið, hágæða hljóðkerfi, skjávarpi og ræðupúlt. Starfsfólk okkar veitir þér ráðgjöf varðandi veitingar og annað sem huga þarf að. Sendu okkur fyrirspurn á nautholl@nautholl.is eða hringdu í síma 599-6660.

Athugið að salurinn leigist aðeins með veitingum.
Vinsamlegast hafið samband til að fá góð tilboð.

Nauthóll - Sjónarhóll fundarsalur
Nauthólsvegur 106 101 Reykjavík
Sími: Birta símanúmer
http://www.nautholl.is

Vinsamlega látið vita að upplýsingarnar koma frá á salir.is þegar haft er samband.

Kort

View Larger Map

Fyrirspurn um þessa þjónustu

Hér getur þú spurst fyrir um bókanir, verð og nánari upplýsingar