Hellishólar í Fljótshlíð

Glæsileg ferðaþjónusta með góða aðstöðu og afbragðs veisluþjónustu

Fjölbreytt afþreying
Hentar vel fyrir hvers kyns veislur og fundi
Glæsilegur veitingasalur sem tekur allt að 180 í sæti
Fagmannleg veisluþjónusta
Skjávarpi
Risaskjár
Bar
Í klukkustundar fjarlægð frá Reykjavík


Nánari upplýsingar

Hellishólar í Fljótshlíð er glæsileg ferðaþjónusta sem býður upp á fjölbreytta afþreyingu fyrir gesti, gistingu í sumarhúsi og fullkomna tjaldaðstöðu. Hellishólar eru staðsettir mitt í sögusviði Brennu-Njálssögu og eru í um klukkutíma fjarlægð frá Reykjavík.

Á Hellishólum er glæsilegur veitingasalur sem tekur allt að 180 manns í sæti. Salurinn hentar vel fyrir allskyns samkomur eins og fermingar-, afmælis- og brúðkaupsveislur sem og vinnuferðir, fundarhöld, óvissuferðir, ættarmót ofl. Hópar geta pantað veitingar hjá Veisluþjónustunni á Hellishólum og fengið afnot af salnum. Ekki er hægt að leigja salinn án veitinga.

Veisluþjónusta

Hægt er að panta veitingar og koma þá kokkarnir okkar á staðinn með allt sem þarfnast í veisluna og þú slakar á. Allt frá litlum fundarbökkum upp í stórar og glæsilegar veislur.

Yfirkokkur Hellishóla er Birgir Þór Júlíusson matreiðslumaður. Birgir hefur áratuga reynslu af matreiðslugerð og bakstri. Hann hefur starfað víða hérlendis og erlendis. Birgir var yfirkokkur á Hótel Kea í nokkur ár, hefur rekið veisluþjónustu í Reykjavík og séð um veitingar fyrir fjölmiðlafyrirtækið 365.

Hafið samband og við gerum þér tilboð í þína veislu.

Auk þess er hefðbundin veitingasala opin yfir sumartímann og hægt er að panta veitingar frá morgni til kvölds. 

Í veitingaskálanum er bar þar sem hægt er að versla áfenga/óáfenga drykki og kokteila eins og þeir gerast bestir. Barinn er opinn til kl. 23 alla virka daga yfir sumarið og til kl. 1 um helgar eða til kl. 3 við ákveðin tilefni. Mikið stuð er á barnum og eru ófá skiptin sem fólk hefur fest hugi saman á Hellishólabar og kemur aftur og aftur til að halda upp á farsæl kynni. Risaskjár er við barinn þar sem t.d. er hægt að horfa á hina ýmsu íþróttaviðburði. Auk þess er kareoki kerfi tengt við mikrafone og hafa ýmsir söngelskir aðilar látið í sér heyra.

Búnaður í veitingasal:

  • Bar
  • Risa skjár
  • Skjávarpi
  • Kareoki kerfi
  • Sæti fyrir allt að 180 manns
  • Aðstaða fyrir trúbador


Hellishólar í Fljótshlíð
Fljótshlíð [póstnr] Fljótshlíð
Sími: Birta símanúmer
http://www.hellisholar.is

Vinsamlega látið vita að upplýsingarnar koma frá á salir.is þegar haft er samband.

Fyrirspurn um þessa þjónustu

Hér getur þú spurst fyrir um bókanir, verð og nánari upplýsingar