Ert þú að skipuleggja fagnað eða fundi þar sem allt á að smella saman? Potturinn og pannan býður úrval hlaðborða fyrir hvers kyns uppákomur. Við bjóðum einnig um á fjölbreytta tilboðsmatseðla. Þú getur komið með þínar séróskir og við gerum okkar besta til að uppfylla þær.
Potturinn og pannan er fjölskylduvænn staður sem hefur áunnið sér vinsældir í gegnum tíðina fyrir þægilega þjónustu og ljúffengar veitingar á sanngjörnu verði. Frá 1982 höfum við verið eitt af ódýrari en um leið betri veitingahúsum landsins.
Markmið okkar er að bjóða ávallt uppá ljúffengan mat úr fyrsta flokks hráefni ásamt fagmannlegri og alúðlegri þjónustu. Þannig leitast Potturinn og pannan við að uppfylla þarfir sinna viðskiptavina og gera heimsókn þeirra ógleymanlega.
Veisluþjónustan Potturinn og pannan er með 3 sali á sínum snærum, veitingasal sinn, Félagsheimilið Blönduósi og Hótel Húnavelli. Góð aðstaða og hröð þjónusta fyrir minni og stærri hópa.
Kjörið er að skipuleggja og halda mannamót á Blönduósi, aðstaða er öll til fyrirmyndar en á staðnum eru margir gisimöguleikar, ný sundlaug, íþróttamiðstöð og úrval gönguleiða og útivistartengdri afþreyingu.
Jólahlaðborð Pottsins og pönnunar 2010 / JÓLAHLAÐBORÐIÐ BYRJAR 12. NÓVEMBER
Meistarakokkar Pottsins og pönnunar töfra fram heillandi jólahlaðborð, á jólahlaðborði Pottsins og pönnunar er meðal annars:
Kalt:
Smörrebrauð með lifrarkæfu, Smörrebrauð með sítrus grafinni lúðu, marineruð síld með perlulauk og dilli, Sinnepssíld, Appelsínusíld, Gammeldansk síld, Epla og karrý síld, steikt síld með dijonsinnepi, harðsoðin egg með reyktum makríl og pipiarrót, grafinn lax með sinnepssósu, reyktur lax með pipiarrótarsósu, heitreyktur lax með piparrótarsósu, sjávarrétta terrine, krabbasalat, Lifrakæfa með beikoni og sveppum, Hreindýrapaté með rifsberjasultu, súrsæt grísasíða, reykt grísasíða, Grísasulta, Hangikjöt með uppstúfi, Bayonneskinka.
Heitt:
Reykt önd, Grísa purusteik, steikt lambalæri, djúpsteikt rauðspretta, Medesterpylsur með súrkáli, Kjötbollur með eplum og lauk
Eftirréttir:
Riz a la Mandes með kirsuberjasósu, Súkkulaðimús, Ís með sósu, Smákökur, kransakökur og piparkökur, Ávaxtakarfa með eplum og mandarínum, Marengsrúlluterta
Hafðu samband og fáðu upplýsingar um aðstöðu og verð!