Sonik sérhæfir sig í tækniþjónustu og leigu á
myndbúnaði fyrir veislur, sýningar, ráðstefnur, fundi, upptökur,
sjónvarpsútsendingar og tónleika af hvaða stærðargráðu sem er.
Tækjaleiga býður fyrirtækjum og einstaklingum bestu fáanlegu þjónustu þegar skipurleggja á viðburð. Hvort sem um tónleika, ráðstefnur, fundi, sýningar eða veislur er að ræða getur tækjaleigan veitt bæði búnað og tækniþjónustu fyrir verkið.
Með eitt stærsta framboð búnaðar og helstu sérfræðinga landsins á sínu sviði verður umgjörðin vel heppnuð
Þekking og reynsla
Innan Tækjaleigu starfa sérfræðingar sem búa yfir mikilli þekkingu og reynslu á þessu sviði. Hafa þeir annast tæknimál á öllum helstu ráðstefnum, sýningum, kynningum og árshátíðum hér á landi um langt árabil.
Hafðu samband við tækniráðgjafa Sonik tækjaleigu sem bjóða þér faglega ráðgjöf við hönnun, uppsetningu og val á réttu lausnunum fyrir þann viðburð sem þú ætlar að setja upp.