| • 60 manns bío uppstilling |
| • 36 skólastofu uppstilling |
| • 28 manns „board room“ |
| • 28 manns dinner (eitt borð) |
Nánari upplýsingar
Hótel Rangá býður gestum sínum upp á þægilega fundaaðstöðu á annarri hæð hótelsins.
Notalegt andrúmsloft er aðalsmerki Hótel Rangár. Hvort sem um er að ræða fundarhöld, fjölskyldusamkomur eða hvers konar hátíðahöld fyrir minni og meðalstóra hópa.
Starfsfólkið er þekkt fyrir lipurð og frábæra þjónustulund og mun það ásamt einstöku umhverfi gera hvers konar atburði ógleymanlega. Hótelið býður upp á sérstakan tengil til að auðvelda samskipti og skipulagningu funda ásamt aðstoð við val á afþreyingu í nágrenni hótelsins.
Öll aðstaðan er útbúin nýjustu tækjum og eru veggir og loft viðarklædd sem gefur hlýlegt og vinalegt andrúmsloft. Einnig getum við boðið upp á fundaaðstöðu í svítunum okkar og stærri herbergjum (Deluxe).
Hótelið býður einnig þráðlaust net gestum að kostnaðarlausu.
Um Hótel Rangá
Hótel Rangá er fjögurra stjörnu lúxus hótel, staðsett á Suðurlandi mitt á milli Hellu og Hvolsvallar. Útsýni frá hótelinu er er stórkostlegt, Hekla blasir við til norðurs, síðan er fjallahringurinn til austurs og norðausturs, í suðaustri trónir svo Eyjafjallajökull og Vestmannaeyjar í suðri. Hótel er meðlimur í glæsilegum alþjóðlegum hótelsamtökum „The Special Hotels of the World“. Margir þekktir einstaklingar jafnt innlendir sem erlendir hafa heimsótt okkur, brúðhjón eyða gjarnan brúðkaupsnóttinni hjá okkur enda vinsæll áningastaður vandlátra ferðalanga.
Hótel Rangá var stækkað árið 2007 og svo aftur 2008 og eru nú 52 herbergi í boði, þ.m.t. fjórar Royal svítur, fjórar Junior svítur og eru sjö af þeim svítum innréttaðar í anda heimsálfanna sjö. Við köllum þessar svítur „The World Pavillion“ enda er hægt að fara umhverfis jörðina á sjö dögum hér á Hótel Rangá. Auk þess bjóðum við upp á 24 Superior herbergi og 20 Deluxe herbergi, öll þægileg og vel útbúin.
Veitingastaður Hótel Rangár er löngu orðinn landsþekktur fyrir frábæran mat og gott úrval gæðavína. Önnur aðstaða á hótelinu er mjög góð, setustofur uppi og niðri, glæsilegur bar, tvö nuddherbergi, leikjaherbergi og heitir útipottar. Yfir vetrartímann er Hótel Rangá vinsæll áningastaður þeirra sem vilja skoða norðurljósin.
Hótel Rangá býður glæsileika og góða þjónustu:
• Metnaðarfull þjónusta, lúxus og hvíld.
• Eina 4 stjörnu hótelið á Suðurlandi
• Mikil þjónustulund og fagfólk við störfin.
• Hótelið var kosið "besta sveitahótelið á Íslandi árið 2004" af Octopus Travel
• Hótelið var kosið Great Wedding destination (Frábær staður fyrir hveitibrauðsdagana!) í alheimsskeppni meðal sjónvarpsáhorfenda GMTV í London.
• Rómantískur staður fyrir brúðkaupsveislur, brúðkaupsnóttina og aðrar hátíðlegar stundir í fjölskyldunni.
• Hlýleg herbergi - öll með baðkari.
• Rómaður veitingastaður af bestu gerð, með útsýni yfir Eystri - Rangá.
• Nýr matseðill í hverjum mánuði - fer eftir árstíðum og fleiru.
• Aðeins er rúmur klukkutíma akstur til Reykjavíkur, en við erum við þjóðveg eitt.
• Heitir pottar utandyra og sér verönd við hvert herbergi.
• Bjóðum upp á nudd og slökun.
• Frábær staðsetning fyrir fundi og ráðstefnur, vinnufundi, sameflingu starfsfólks.
• Frítt háhraða internet samband.
• Mjög margt áhugavert til að skoða er innan seilingar.
• Erum þekk fyrir góða aðstöðu til að skoða norðurljósin, þegar þau sjást.
• Útvegum stangaveiðileyfi, golf, hestaferðir, river rafting, vélsleðaferðir, fjórhjólaferðir (ATV) eða jeppaferðir
Hótel Rangá - fundarsalur 1
Hotel Ranga
851
Hella
Sími:
Birta símanúmer
Vinsamlega látið vita að upplýsingarnar koma frá á salir.is þegar haft er samband.
Kort
View Larger Map