Salurinn hentar sérstaklega vel fyrir brúðkaup, afmæli, árshátíðar eða hverskyns veislur og fundi.
Í salnum er hljóðkerfi fyrir tal og tónlist, barborð og framreiðslueldhús.
Einnig er mögulegt að ganga út á rúmgóðar svalir og njóta útsýnissins um dalinn. Aðgengi er gott, lyfta og næg bílastæði. Þrif eru innifalin í leigunni, borðbúnaður og afnot af móttökueldhúsi. Athugið að dúkar fylgja ekki.