Aðalgerði er stærsti salurinn á Hótel Örk. Salurinn er með stóru sviði og öllum tilheyrandi sviðsbúnaði og hentar því vel fyrir stærri veislur, ársáhátíðir fundi og ráðstefnur. Salurinn rúmar 220 manns við hringborð og um 300 manns á langborðum eða í skólastofu uppstillingu.
Allur tæknibúnaður s.s. þráðlaust net, skjávarpi, myndvarpi, sýningartjald, flettitafla, hljóðkerfi, og hljóðnemi.
Hótel Örk er fyrsta flokks hótel 157 herbergi, allt frá Standard herbergjum að svítum. Hótelið er í Hveragerði í aðeins 45 km fjarlægð frá Reykjavík.
Mikið er af afþreyingu á hótelinu og má þar nefna góðan veitingastað, bar, 9 holu golfvöll, sundlaug með vatnsrennibraut, heitir pottar, gufubað, borðtennisborð, pool borð og snyrtistofa.
Umhverfið er líka einstaklega friðsælt og fallegt og auðvelt að finna sér eitthvað að gera sér til skemmtunar
Salurinn hentar mjög vel fyrir veislur, fundi og ráðstefnur. Brúðkaup, afmæli, árshátíðar, hvataferðir, jólahlaðborð, fermingar og erfidrykkju.