Hótel Holt - Þingholt

Virðulegur fundarsalur í miðbæ Reykjavíkur

Virðulegt yfirbragð og gott næði
Aðeins 5 mínútna göngufjarlægð frá miðbænum
Tækjabúnaður s.s myndvarpi, nettenging ofl innifalin í verði
Íslensk listaverk prýða staðinn
Koníakstofa og bar


Nánari upplýsingar
Þingholt er tilvalinn salur fyrir hádegisfundi, kvöldverði, kynningar, ráðstefnur og smærri fundi.
Salurinn hefur virðulegt yfirbragð og býður uppá gott næði.


Fundaraðstaða:
Langborð                          30 manns
6 manna borð                  36 manns
Bíóuppröðun                    60 manns


Innifalið í verði er aðstaða án veitinga, tækjabúnaður, s.s. skjávarpi, fletti og tússtafla og nettenging.

Hótel Holt er fyrsta flokks hótel staðsett í Þingholtunum, aðeins í 5 mínútna göngufjarlægð frá miðbæ Reykjavíkur. Hótel Holt er eitt virtasta hótel á landinu og hefur verið leiðandi á sviði veitinga og framreiðslu allt frá opnun þess árið 1965.


Íslensk listaverk prýða öll herbergi hótelsins og hið sama gildir um veitingastaðinn, barinn, koníaksstofuna og ráðstefnu- og veislusalinn Þingholt. Á Hótel Holti er að finna eitt stærsta listaverkasafn í einkaeigu á  Íslandi og staðurinn á engan sinn líka hér á landi.

Hótel Holt - Þingholt
Bergstadastræti 37 101 Reykjavík
Sími: Birta símanúmer
http://www.hotelholt.is

Vinsamlega látið vita að upplýsingarnar koma frá á salir.is þegar haft er samband.

Fyrirspurn um þessa þjónustu

Hér getur þú spurst fyrir um bókanir, verð og nánari upplýsingar