Hótel Holt - Þingholt

Spennandi veislusalur og fundarsalur í miðbæ Reykjavíkur

100 manns í standandi veislur og boð
40 manns í sitjandi borðhald
Mögulegt að leigja sem eitt samfellt rými fyrir veislur
25 manna setustofa
Sér inngangur í salinn til hliðar við hótel innganginn
Glæsilegur bar og setustofur og safn málverka á veggjum
Hlaðborð fyrir veitingar í opna rýminu
Vandað veislueldhús með fjölbreyttum veitingum
Hótelherbergi
Einkabílastæði við inngang


Nánari upplýsingar
Þingholt er einstakt veislurými í miðbæ Reykjavíkur. Aðstaða sem hentar bæði vel fyrir standandi veislur og móttökur eða sitjandi borðhald.

Sér inngangur er í Þingholt, til hliðar við hótel innganginn en fyrir utan eru einkabílastæði fyrir gesti.

Gengið er inní opið rými með fallegum bar og framreiðslu borði sem notað er fyrir veitingar. 

Í borðsalnum er hægt að dekka upp langborð fyrir allt að 50 manns í sitjandi borðhald. Stilla upp fyrir fundi  eða fyrir standandi/sitjandi veislur og móttökur. 

Bókaherbergið er einstaklega notaleg setustofa fyrir um 25 manns í þægilegum leðustólum og sófum.

Við barinn er opin setustofa fyrir allt að 20 manns í sæti.

Á neðrihæð við inngang er fatahengi og vínkjallari.

Í þingholti er hægt að skapa mjög skemmtilega stemningu þar sem gestir geta fært sig milli rýma en barinn og opið rými eru miðja veislunnar.

Hótel Holt býður uppá vandaða veisluþjónustu, smárétti, pinnamat eða kaffiveitingar.  Einnig margrétta Gala-veislur sé þess óskað.

Á hótelinu eru notaleg hótelherbergi sem hægt er að leigja fyrir veislugesti sem þess óska en nauðsynlegt er að bóka með góðum fyrirvara.

Þingholt er aðstaða í sérflokki fyrir brúðkaupsveislur, afmæli, skírnarveislur, árshátíðar og fermingarveislur.  

Þingholt er afburða góð aðstaða fyrir standandi veislur og móttökur.

Einnig hentar rýmið fyrir þematengda menningar og listviðburði.

Íslensk listaverk prýða öll herbergi hótelsins og hið sama gildir um veitingastaðinn, barinn, koníaksstofuna og ráðstefnu- og veislusalinn Þingholt. Á Hótel Holti er að finna eitt stærsta listaverkasafn í einkaeigu á  Íslandi.

Hótel Holt - Þingholt
Bergstadastræti 37 101 Reykjavik
Sími: Birta símanúmer
http://hotelholt.is

Vinsamlega látið vita að upplýsingarnar koma frá á salir.is þegar haft er samband.

Kort

View Hótel Holt á www.salir.is in a larger map

Fyrirspurn um þessa þjónustu

Hér getur þú spurst fyrir um bókanir, verð og nánari upplýsingar