Þingholtssalur er tilvalinn kostur fyrir fyrirtæki og hópa sem vilja
hittast í notalegu umhverfi, njóta góðrar þjónustu og lyfta sér upp um
leið. Salurinn hentar vel fyrir hvers kyns veislur eða fundi s.s.
brúðkaup, kokteilboð, hópefli, árshátíðir, fermingar eða annan viðburð.
Þingholtssalur tekur allt að 130 manns í sæti en rúmar þó hátt í 250
manns í stærri samkomum. Hægt er að stúka salinn af eftir hentugleika
hvers og eins. Fullkominn tækjabúnaður er til staðar, s.s. hljóðkerfi,
skjávarpi og nettenging.
Auðvelt er að laga salinn að þörfum hvers hóps fyrir sig.
Full þjónusta í mat og drykk.


