Veisluþjónusta Café Konditori Copenhagen

Spennandi veisluþjónusta

Kaffihlaðborð
Pinna matur & Tapas
Fyrirtækjaþjónusta
Veislur með dönsku yfirbragði
Fyrirtækjaþjónusta
Fyrirtækjabakkar
Tertur


Nánari upplýsingar
Café Konditori Copenhagen býður upp á alhliða veisluþjónustu, hvort sem það er fyrir brúðkaup, skírnir, fermingar, afmæli, árshátíðir, móttökur, ráðstefnur eða erfidrykkjur. Veislurnar okkar eru iðulega með dönsku ívafi og er fagmennskan ávallt í fyrirrúmi. Veisluborðið er samansett af framúrskarandi konditorhefð, mat og öruggri þjónustu. Við hvetjum ykkur til að koma í heimsókn og skoða það helsta sem stendur til boða og ekki er síður nauðsynlegt að fá að smakka herlegheitin. Það er engin veisla svo smá eða svo stór að það borgi sig ekki að tala við okkur. Hringdu og pantaðu tíma með fagfólkinu þegar þú ert að huga að undirbúningi veislunar. s: 588-1550

Fyrirtækjaþjónusta
Veisluþjónustan býður fyrirtækjum uppá tilbúna fundarbakka, fjölbreytt kaffimeðlæti, smurð rúnstykki á morgnana, smástykki og Canabe fyrir móttökurnar, gjafakörfur og konfektkassa fyrir starfsfólk og viðskiptavinina og auðvitað frábært úrval af tertum þegar veisla stendur fyrir dyrum.

Fyrirtækjabakkar
Hjá okkur fáið þið hina vinsælu fyrirtækisbakka af ölllum stærðum og gerðum, sem hannaðir eru fyrir fundi og móttökur.

Hægt er að panta bakkana með sólahrings fyrirvara, sótt þá á Suðurlandsbraut 4a eða fá þá senda heim að dyrum

Tertur
Við sérhæfum okkur í öllu því sem viðkemur kökugerð. Við leggjum metnað okkar í að gleðja bæði gesti og gestgjafa bæði hvað varðar bragð og útlit. Hjá okkur getur þú fengið  heimsþekktar kökutegundir, þar má nefna Sacher tertur, danskar ávaxtatertur, Fredrik og Mary rjómatertur, kransakökur, franskar og belgískar súkkulaðikökur, í öllum stærðum sem henta Í afmælisveislur og til hverskyns tilefna.


Veisluþjónusta Café Konditori Copenhagen
Suðurlandsbraut 4a
Sími: Birta símanúmer
www.konditori.is

Vinsamlega látið vita að upplýsingarnar koma frá á salir.is þegar haft er samband.

Fyrirspurn um þessa þjónustu

Hér getur þú spurst fyrir um bókanir, verð og nánari upplýsingar