Boðið er upp á góða aðstöðu til fundarhalda í Laugum. Tveir fundarsalir standa til boða, annar fyrir allt að 60 manns og sá minni fyrir 14 manns en hann er mjög búinn mjög fullkomnum tækjabúnaði. Einnig er hægt að halda stærri viðburði í húsarkynnum Lauga Café.
Frekari upplýsingar veitir Logi: logi@worldclass.is
Laugar Café
Á Lauga Café er hægt að fá morgunverð, hádegisverð og kvöldverð ásamt fjöbreyttu úrvali léttra heilsurétta, samloka og drykkja allan daginn. Áhersla er lögð á fersk hráefni og hóflegt verð.
Tilvalið er fyrir fyrirtæki og aðra hópa að koma í Laugar og njóta matar og drykkjar á Laugar Café. Nýta sér fundaraðstöðu okkar og veislusal á 2. hæð eða skella sér í baðstofuna og borða saman í veitingasal okkar þar. Fjölbreyttur mat- og vínseðill er í boði, einnig setjum við saman hópmatseðla fyrir þá sem vilja og bjóðum upp á tapasrétti sem hafa notið mikilla vinsælda.
Tilvalið er að koma við í Laugar Café eftir gönguferð í Laugardalnum, góðan sundsprett í laugardalslaug, átök í heilsuræktinni og eða notalega stund í Baðstofunni eða Laugar Spa.

