Veislu og fundarsalurinn í safnaðarheimili Háteigskirkju tekur allt að 130 manns í
sæti við borð, annars 180 manns. Salurinn er sérstaklega heppilegur og
glæsilegur fyrir fundi, námskeið og veisluhöld. Brúðkaup,
fermingarveislur, afmæli og erfidrykkjur sem og fyrir ýmiskonar fundi og
námskeið.
Gott að vita
Samhliða
leigu á salnum ræður leigutaki Kristínu Ólafsdóttur. Hún er þjónn og
aðstoðar við undirbúning, hefur umsjón með veislunni og sér til þess að
allt sé eins og þú vilt hafa það!
Kvaðir varðandi matarkaup frá sérstökum aðilum eða varðandi önnur aðföng eru engar.
Kirkjuverðir sýna salinn á opnunartíma kirkjunnar eftir samkomulagi.



