Því miður er Kaffi Reykjavík / Restaurant Reykjavík ekki lengur í útleigu
Hvort sem tilefnið er brúðkaup, afmæli, árshátíð, aðrir
mannfagnaðir eða fundir þá leysum við málið. Við erum búin öllum tækjum
sem til þarf til að halda vel heppnaða veislu eða fund.
Restaurant Reykjavík hefur upp á að bjóða fallega innréttað stóra og smáa sali sem henta við öll tækifæri, hvort sem eru fundir, ráðstefnur, móttökur eða veislur. Salirnir eru vel búnir tækjum.
Við getum sett upp dansgólf í stærri salina sé þess óskað og útvegað hljómsveitir eða aðra hljómlist af geisladiskum, allt eftir óskum.
Veislur af öllum gerðum
Við sjáum um allar tegundir af veislum og móttökum sama hvert tilefnið er. Þú getur valið um smárétta-, grænmetis- eða sjávarréttahlaðborð; stórveisluborð; úrval af hátíðamatseðlum að eigin vali; austurlenskt veisluborð; fingurfæðismat eða annað í samráði við matreiðslumenn okkar. Allt eftir þínum óskum.



