Kastalinn

Veislusalur með sögu í hjarta miðbæjarins

• Allt að 80 gestir í standandi veislum
• Allt að 60 gestir í sitjandi borðhaldi
• Leigður án veitinga
• Góð staðsetning í miðbæ Reykjavíkur
• Upphækkað svið
• Setustofa með sófa og hægindastólum
• Lítið móttökueldhús, borðbúnaður og vínglös
• Um 5 mínútna gangur frá Dómkirkjunni
• Leigður til klukkan 23:00


Nánari upplýsingar

Kastalinn 
Fyrrum samkomusalur Hjálpræðishersins er sögufrægur salur á jarðhæð gamla Herkastalans við Kirkjustræti 2, þar sem áður var samkomusalur Hjálpræðishersins. Þar voru haldnar fjölmennar og líflegar samkomur með lúðraslætti, söng og predikunum sem drógu að sér fólk úr öllum stéttum, ekki síst verkamenn, sjómenn og þá sem minna máttu sín. Starfsemin í salnum setti sterkan svip á bæjarlífið í Reykjavík og enn í dag liggur sagan í loftinu. 

Frábær staðsetning
Staðsetningin í miðbæ Reykjavíkur er einstök og gengið er beint inn í salinn frá Kirkjustræti. 

Mikil lofthæð, parketlögð gólf og falleg vegglýsing skapa hlýlegt og virðulegt umhverfi sem hentar jafnt fyrir veislur sem menningarviðburði. 

Allt að 80 gestir 
Salurinn tekur allt að 80 manns í standandi veislur og viðburði og 60 manns í sitjandi borðhald. Auðvelt er að skapa sína eigin stemningu með uppröðun borða og stóla, hvort sem dekkað er upp fyrir sitjandi veislu eða stólum raðað upp fyrir fyrirlestur eða menningarviðburð. 

Svið fyrir skemmtikrafta, ræðuhöld og tónlist Upphækkað svið opnar fjölbreytta möguleika, til dæmis fyrir ræðuhöld, tónlistarflutning, upplestra, fyrirlestra, uppistand og aðrar sviðslistir. Þar er jafnvel rými fyrir litla hljómsveit. 

Í salnum er einnig upphækkað herbergi með sófa og hægindastólum, sem nýtist vel sem notalegt setusvæði eða sem bar fyrir drykki. 

Móttökueldhús með borðbúnaði.
Í kastalanum er lítið móttökueldhús ásamt borðbúnaði og vínglösum, sem einfaldar allan undirbúning.

Salurinn er leigður án veitinga. 

Vettvangur fyrir veislur og menningarviðburði Kastalinn nýtur sín einstaklega vel fyrir opnanir, standandi veislur og hvers kyns menningarviðburði, sem og fermingarveislur og afmæli. 

Salurinn er aðeins steinsnar frá Dómkirkjunni, í um fimm mínútna göngufjarlægð, og hentar því sérlega vel fyrir brúðkaupsveislur og erfidrykkjur. 

Hægt er að leigja salinn til klukkan 23:00 á kvöldin.

Kastalinn
Kirkjustræti 2 101 Reykjavík
Sími: Birta símanúmer


Vinsamlega látið vita að upplýsingarnar koma frá á salir.is þegar haft er samband.

Kort

Fyrirspurn um þessa þjónustu

Hér getur þú spurst fyrir um bókanir, verð og nánari upplýsingar