Matarkjallarinn er veitingastaður að Aðalstræti 2 í hjarta miðbæjar Reykjavíkur. Staðurinn er í kjallara í einu af elstu húsum borgarinnar, sem áður var kallað Geysishús. Hús sem á sér um 160 ára sögu.
Aðkoman er skemmtileg. Gengið er niður tröppur framan við húsið frá Aðalstræti og beint inn á staðinn.
Falleg lýsing og þægileg húsgögn skapa hlýlega og heillandi stemningu og oft hljómar lifandi píanótónlist um salinn. Stór bar er fyrir miðju staðarins og þegar líður á kvöldið myndast skemmtileg kokteilstemning.
Salir fyrir stóra og smáa hópa
Matarkjallarinn tekur um 120 manns í sæti og skiptist í rými sem henta hópum af ólíkri stærð.
Innri salurinn rúmar 60 manns til borðs og hentar vel hópum sem vilja vera í sal út af fyrir sig. Fyrir minni hópa er sérrými sem tekur allt að 20 manns.
Einnig er hægt að leigja allan staðinn fyrir allt að 120 manns. Þá er miðað við ákveðna lágmarksupphæð í kaupum á veitingum.
Hádegisverður og brunch
Á daginn er staðurinn leigður út frá kl. 11:00 til 17:00, til dæmis fyrir hádegisverð, brunch eða erfidrykkju síðdegis. Hægt er að panta ljúffenga rétti af sérstökum hópmatseðli.
Á kvöldin
Á kvöldin er hægt að bóka sérrýmið fyrir allt að 20 manns eða innri salinn fyrir allt að 60 manns. Einnig er hægt að fá staðinn allan fyrir hópinn og er þá miðað við fyrir fram ákveðið verð fyrir veitingar.
Matarkjallarinn hentar vel fyrir fyrirtækjahópa, afmæli, erfidrykkjur, vinahópa og endurfundi. Hann hentar öllum sem vilja vera með sal út af fyrir sig en samt á góðum stað í miðbæ Reykjavíkur.
©www.salir.is - afritun og endurbirting óheimil.






