Ylja veitingastaður
Ylja er veitingastaður Laugarás Lagoon og tekur á móti bæði einstaklingum og hópum í hádegis- og kvöldverð.
Hér er hlýleg umgjörð fyrir starfsmannaferðir, afmæli, fjölskyldusamkomur og önnur tilefni þar sem fólk vill koma saman og njóta góðrar máltíðar. Gísli Matthías Auðunsson, betur þekktur sem Gísli Matt, leiðir eldhúsið.
Matargerðin byggir á árstíðunum og fersku hráefni úr nærumhverfinu, þar sem íslenskar matarhefðir mæta nútímalegum matreiðsluaðferðum.
Tekur á móti allt að 80 gestum innandyra. Hópamatseðlar fyrir 10 gesti eða fleiri. Hádegis- og kvöldverður. Einkarýmið Hvítá fyrir fundi og minni viðburði. Möguleiki á að bóka allan veitingastaðinn fyrir einkaviðburð eftir samkomulagi.
Hægt að sameina máltíð og heimsókn í Laugarás Lagoon. Opin öllum – ekki þarf að bóka aðgang að lóninu til að borða á Ylju.
Hópar og viðburðir
Hvort sem þið eruð að skipuleggja starfsmannaferð, afmæli eða máltíð með vinum og fjölskyldu, aðstoðum við við að finna matseðil og umgjörð sem hentar tilefninu. Hópar geta bókað borð á almennum opnunartíma eða haft samband vegna einkaviðburðar.
Hópamatseðla þarf að panta með að minnsta kosti 24 klukkustunda fyrirvara. Þeir eru í boði fyrir 10 gesti eða fleiri og miðast verð við að allur hópurinn velji sama matseðil. Látið okkur vita fyrirfram af ofnæmi, óþoli eða sérstöku mataræði.









