Hvítá einkarými
Hvítá er hlýlegt einkarými á veitingastaðnum Ylju viðLaugarás Lagoon. Salurinn er um 50 m² og rúmar allt að 35 gesti til borð. Þegar salnum er stillt upp sem fundarsalur þá hentar hann vel fyrir 25 manns.
Hægt er að ganga úr salnum beint út á verönd.
Skjávarpi og þráðlaust net eru til staðar og hægt er að aðlaga uppsetningu að tilefninu og fjölda gesta.
Ylja veitingastaður
Veitingar koma frá Ylju og hægt er að velja fundarkaffi, hádegisverð eða kvöldverð eftir dagskrá hópsins. Þannig má hefja daginn á fundi eða stefnumótun og halda samverunni áfram yfir góðri máltíð.
Heimsókn í Laugarás Lagoon
Fyrir hópa sem vilja njóta dagsins enn betur er hægt að bæta heimsókn í Laugarás Lagoon við dagskrána.
Fundur, matur og afslöppun fara þá saman á einum stað, í fallegu umhverfi við bakka Hvítár.
Segið okkur frá tilefninu, fjölda gesta og því sem þið hafið í huga. Við aðstoðum við að setja saman dagskrá og veitingar sem henta hópnum.
Hvítá býður upp á rólega og notalega umgjörð fyrir fundi og minni viðburði. Rýmið hentar jafnt fyrir vinnudag utan skrifstofunnar og samveru við sérstök tilefni.










