Arkitektúr hússins er einstaklega fallegur. Stórir gluggar láta innra rýmið og landslagið fyrir utan renna saman og hleypa inn fallegri birtu. Á kvöldin má svo njóta sólarlagsins.
Í húsinu eru tvö rými. Annars vegar er stór og opinn salur með borðum og stólum. Þar er líka koníakshorn með leðurstólum, stór bar, fatahengi og framreiðsluborð fyrir veitingar. Úr salnum er hægt að ganga út á verönd með borðum og stólum.
Hins vegar er setustofa fyrir allt að 30 manns. Þar eru borð og stólar í bland við leðurhúsgögn, hægindastóla og sófa.
Í húsinu er hljóðkerfi fyrir tónlist og skjáir sem hægt er að tengja við tölvu, til dæmis fyrir kynningar, myndasýningar eða fundi.
Golfskálinn tekur alls um 70 manns í sæti, þar af um 50 við borð. Hægt er að bæta við borðum og taka á móti fleiri gestum í standandi eða sitjandi veislum og viðburðum.
Húsið leigist með eða án veitinga. Hægt er að vera með vínveitingar og opinn bar.
Golfskálinn Brautarholt hentar vel fyrir fyrirtækjaviðburði, árshátíðar og óvissuferðir. Brúðkaup, fermingar, og afmæli.
Hann hentar líka fyrir fundi og námskeið þar sem kyrrðin og náttúran skapa góða umgjörð.
Athugið að húsið er ekki leigt út á sumrin nema samkvæmt nánara samkomulagi.






