Cernin
Cernin er einstakur vínbar við Laugaveg í miðbæ Reykjavíkur. Cernin heldur vel utan um hópinn, býður góðan þokka og nánd.Staðurinn er innréttaður sem modern lounge eða boutiqe bar. Falleg lýsing og flott yfirbragð og heimsborgar yfirbragð býr til stemninguna.
Notalegt er að fylgjast með götulífinu á Laugaveginum fyrir utan gluggann en vera samt í góðu næði fyrir innan.
Sérstaða Cernin er að boðið er upp á einstakt úrval af góðum vínum frá Maison Wessman vínekrum í Frakklandi. Hægt er að velja vín eftir smekk og kaupa í glasavís úr vínkælum og geta þannig smakkað, notið og borið saman.
Einnig er boðið uppá vín í flöskum, bjór, kokteila og annað af bar.
Cernin er í samstarfi við Rossopomodoro handan götunar með smárétti og veitingar sem henta með drykkjum.
Cernin fyrir hópa
Hægt er að bóka Cernin fyrir hópa, hvort sem væri staður fyrir fordrykk áður er farið er út að borða eða áður en farið er á menningarviðburði í miðbænum.
Einnig er hægt að bóka Cernin allt kvöldið eða til klukkan 01:00 fyrir einkasamkvæmi.
Salurinn rúmar allt að 30 manns í sæti. Fyrir utan eru borð, stólar, hitarar og markísur, sem hægt er að nota á góðviðrisdögum og fjölga þá gestum.
Cernin hentar fyrir alla sem vilja koma saman í miðbænum og upplifa einstaka stemningu, ljúffenga drykki í fallegu umhverfi. Fyrirtækjahópar, vinahópar, afmæli, útskriftaveislur og óvissuferðir.






