Resident Room

Framandi og flottur staður í miðbæ Reykjavíkur

• 35 manns í sæti
• 50 manns í standandi veislur
• Staðsett í miðbæ Reykjavíkur
• Hægt að leigja hluta úr kvöldi eða allt kvöldið
• Gott hljóðkerfi
• Þægileg húsgögn
• Einstök suðræn stemning
• 5 mín. gangur frá Hörpu
• Staðsett framan við Þjóðleikhúsið
• Aðstaða fyrir dj.


Nánari upplýsingar

Resident Room 
Resident room er nýr kokteilbar í miðbæ Reykjavíkur.

Staðurinn er innréttaður í fjörugum Art deco stíl þar sem notaleg húsgögn, ævintýralegt andrúmsloft og góð lýsing ásamt stórum plöntum skapa stemninguna. Á veggi eru stór málverk máluð beint á múrinn. Allt myndar þetta suðræna stemningu og frábæra umgjörð fyrir gott partý.

Gott hljóðkerfi er í salnum og aðstaða fyrir Dj.

Á glæsilegum barnum er úrval af vönduðum kokteilum, góðum vínum og bjór borinn fram í héluðum glösum.

Hægt er að bjóða upp á léttan fingramat með drykkjum ef óskað er.

Framan við staðinn á gangstétt eru útiborð og stólar sem hægt er að nota þegar veður er gott.

Resident Room er hægt að leigja fyrir veislur, hvort sem er allt kvöldið fram á nótt eða í nokkrar klukkustundir til dæmis í upphafi kvölds áður en farið er í út að borða, í leikhús eða á tónleika. Enda er þjóðleikhúsið hinum meginn við götuna og aðeins nokkura mínútna gangur í Hörpuna frá staðnum.

Resident Room hentar því vel fyrir vinahópa eða fyrirtækjahópa sem vilja vera með spennandi sal út af fyrir sig í miðbænum, allt kvöldið eða hluta úr kvöldi.

Staðurinn er flottur fyrir t.d. útskriftarveislu seinnipart dags, kokteilstund fyrir hópa eða fordrykk fyrir aðra viðburði í miðbænum

Resident Room
Hverfisgata 26, 101 Reykjavík
Sími: Birta símanúmer


Vinsamlega látið vita að upplýsingarnar koma frá á salir.is þegar haft er samband.

Kort

Fyrirspurn um þessa þjónustu

Hér getur þú spurst fyrir um bókanir, verð og nánari upplýsingar