Hlíðasmárinn er nýr fallegur salur í húsnæði Sálfræðiklínikunnar, staðsettur að Hlíðasmára 14 í kópavogi.
Salurinn rúmar allt að 25 manns í þægileg sæti og hægt er að raða upp borðum og stólum á mismunandi hátt eftir tilefni.
Salurinn rúmar 35 manns í standandi veislur og viðburði.
Í salnum er sófi og nokkrir hægindastólar sem mynda þægilega setustofu innst í salnum. Til hliðar er eldhús með kaffikönnu, uppþvottavél, örbylgjuofni og ísskáp. Þar eru einnig tvö lítil fundar eða vinnuherbergi.
Stór skjár er á vegg sem hægt er að tengja við tölvu. Einnig er mögulegt að nýta podcast búnað sem er á staðnum, fyrir upptökur.
Aðgengi er mjög gott. Gengið er inn í anddyri frá götu og þaðan inn í salinn. Þá er hægt að opna hurð að aftan, beint út úr salnum.
Að auki eru tvö notaleg lítil viðtals- og fundarherbergi til hliðar við salinn.
Hlíðasmárinn hentar mjög vel fyrir fundi, kennslu, fyrirlestra og námskeið.
Hlíðasmárinn er upplagður fyrir smærri veislur eins og skírnarveislur, opnanir eða smærri fermingarveislur.
Svo og fyrir fyrirtækjahópa sem vilja koma saman og halda fund og fá aðkeyptar veitingar.
Salurinn er leigður án veitinga og áhalda til að bera fram mat og drykk.













