Sjálfsbjargar salurinn

Veislusalur og fundarsalur Sjálfsbjargar

• 100 manns í sitjandi borðhald
• Gott aðgengi og næg bílastæði
• Bjartur salur með mikið af gluggum
• Móttökueldhús
• Borðbúnaður (ekki dúkar)
• Hljóðkerfi og hljóðnemi
• Skjár tengjanlegur við tölvu
• Fatahengi


Nánari upplýsingar
Veislusalur og fundarsalur Sjálfsbjargar á höfuðborgarsvæðinu er staðsettur í Hátúni 12, miðsvæðis í Reykjavík.
Umhverfið er rólegt og fallegt með góðu aðgengi og nóg af bílastæðum framan við húsið.

Salurinn tekur allt að 100 manns í sæti og hægt er að raða upp borðum og stólum á ýmsan hátt eftir tilefni. Innst í salnum er hljóðkerfi með hljóðnema fyrir tal og tónlist. Þar er stór skjár sem hægt er að tengja við tölvu.

Í anddyri er fatahengi og rúmgott móttökueldhús.  Í eldhúsinu er bakarofn, eldavél, uppþvottavél og ísskápur. Útleigu fylgir allur venjulegur borðbúnaður, en ekki dúkar.

Salurinn er aðeins leigður út með aðstoðarmanneskju í eldhúsi.

Veislu- og fundarsalur Sjálfsbjargar hentar fyrir fjölbreytt mannamót eins og afmæli, brúðkaup, fermingarveislur og skírnarveislur.

Salurinn hentar vel fyrir fundi, fyrirlestra, námskeið og kennslu.

©www.salir.is - höfundarréttarvarið efni afritun og endurbirting óheimil 

Sjálfsbjargar salurinn
Hátún 12, 105 Reykjavík
Sími: Birta símanúmer


Vinsamlega látið vita að upplýsingarnar koma frá á salir.is þegar haft er samband.

Kort

Fyrirspurn um þessa þjónustu

Hér getur þú spurst fyrir um bókanir, verð og nánari upplýsingar