Leifur - Veislusalur og Bar

Fallegur salur beint fyrir framan Hallgrímskirkju

50 manns í sæti
60+ í standandi veislur og viðburði
Einstök staðsetning við Hallgrímskirkju
Sér inngangur frá götu í salinn
Borð og stólar á verönd framan við salinn
Einfalt en vandað Hljóðbox fyrir tónlist
Gott borð fyrir veitingar
Bar
Leigist með eða án veitinga


Nánari upplýsingar

Leifur - veislusalur og Bar
Efst á Skólavörðustígnum, beint fyrir framan Hallgrímskirkju er fallegur veislusalur og bar.
Veislusalurinn er hluti af Leifur Bar á jarðhæðinni á Hóteli Leifs Eiríkssonar.

Sér inngangur og útiverönd
Framan við salinn er útiverönd með borðum og stólum og þar er gengið inn í salinn þegar einkaviðburðir eru haldnir á staðnum. Hægt er að opna úr salnum út á veröndina með rennihurðum á góðviðrisdögum.

Salurinn tekur um 50 manns við borð en 65 manns í standandi veislur. Einnig er hægt að opna inn á Leifur Bar til að versla af barnum eða ef um stærri hópa er að ræða.

Fallegur arkitektúr og notalegt yfirbragð einkennir staðinn, ásamt góðri lýsingu, myndlist og plöntum. Fyrir miðju er aðstaða til að bera fram drykki og veitingar og þar er stórt borð með rennandi vatni og vaski.

Í salnum eru þægilegir sófar með fram veggjum og borð og stólar fyrir miðju. Auðvelt er að fækka eða fjölga borðum eftir þörfum.

Inn af salnum er Leifur Bar. Hægt er að loka alveg inn á barinn eða hafa opið fyrir þá sem vilja versla drykki af barnum.

Leigður með eða án veitinga

Leifur hentar vel fyrir þá sem vilja koma saman á fallegum stað í miðbæ Reykjavíkur. Hentar fyrir fermingarveislur, nafnaveislur og veislur tengdar viðburðum í Hallgrímskirkju.

Hentar vel fyrir útskriftaveislur, afmæli, fyrirtækjahópa, menningarviðburði og opnanir.

©www.salir.is - afritun og endurbirting óheimil.

Leifur - Veislusalur og Bar
Skólavörðustígur 45, 101 Reykjavík
Sími: Birta símanúmer


Vinsamlega látið vita að upplýsingarnar koma frá á salir.is þegar haft er samband.

Kort

Fyrirspurn um þessa þjónustu

Hér getur þú spurst fyrir um bókanir, verð og nánari upplýsingar