Bryggjusalurinn býður upp á einstaka umgjörð fyrir mannfagnaði í hjarta gömlu hafnarinnar með stórbrotnu útsýni fyrir bryggjuna, höfnina og hafið.
Salurinn er 230 fermetrar að stærð, staðsettur á jarðhæð safnsins með góðu aðgengi út á bryggjuna framan við salinn. Stórir gluggar, falleg og stillanleg loftlýsing og einstakt umhverfi skapa sérstaka stemningu fyrir hvers kyns viðburði.
Útisvæðið á bryggjunni setur svip sinn á upplifunina, hvort sem um er að ræða sumarmóttöku, hátíðlegan viðburð eða notalega samveru í fallegu hafnar umhverfi.
Hægt er að ganga út á bryggjuna beint úr salnum.
Salurinn er leigður án veitinga.
Salurinn rúmar 75 gesti í sitjandi borðhald og 100 - 150 gesti í standandi veislur og móttökur.
Í salnum er móttökueldhús með kæliskáp og kaffikönnu. Þar er bar til að bera fram veitingar og drykki en salurinn leigist án veitinga og borðbúnaðar. Við innganginn eru sófar og hægindastólar.
Bryggjusalurinn er fjölnota rými sem hægt er að útfæra og raða upp á fjölbreyttan hátt. Salurinn hentar fyrir veislur, menningarviðburði, fundi námskeið og fyrirtækjaviðburði.
Sýning á efri hæð Sjóminjasafnsins
Á efri hæð safnsins er vönduð og yfirgripsmikil sýning, Fiskur og fólk - sjósókn í 150 ár. Hægt er að kaupa leiðsögn um sýninguna og bæta þannig einstökum menningarblæ við viðburðinn.
Bryggjusalurinn verðskrá 2026
Leiga utan opnunartíma safnsins, klukkan 17:00 - 22:00 alla daga kr. 199.000
Leiga á opnunartíma safnsins er skv. nánar samráði
Hægt er að semja um styttri tíma en fimm klukkustundir og kosta þá hver klukkustund kr. 45.000
Einnig er rukkað tímagjald fyrir starfsmann.


