Ölvisholt Veislusalur

Vandaður veislusalur í Hafnarfirði

100 manns í sæti við hringborð
150 manns í blandaða uppstillingu
Vandaðar innréttingar og fágað yfirbragð
Hljóðkerfi fyrir dinnertónlist
Hljóðkerfi, mixer og hljóðnemi
Skjávarpi og 2 sýningartjöld
Hægt að koma með eigin matarveitingar
Fullbúinn bar og vínveitingar á staðnum
Leirtau en ekki móttökueldhús, dúkaleiga
Gott aðgengi og bílastæði


Nánari upplýsingar

Ölvisholt er vandaður veislusalur að Grandatröð 4, örstutt frá miðbæ Hafnarfjarðar.

Salurinn rúmar 100 manns í sæti og allt að 150 manns í blandaða uppstillingu, þá standandi og sitjandi. Hægt er að stilla upp hringborðum fyrir sitjandi borðhald eða blanda saman minni borðum og standborðum fyrir viðburði með blandaða uppstillingu.

Hljóðkerfi, sýningartjöld og sviðhækkun
Í salnum er tvöfalt hljóðkerfi, annars vegar einfalt kerfi fyrir dinnertónlist og hins vegar mixer og hljóðnemi fyrir ræðuhöld og skemmtikrafta. Skjávarpi og sýningartjöld eru í hvorum enda salarins. Einnig er hægt að nota færanlega sviðshækkun.

Eigin matarveitingar
Góð aðstaða er til að bera fram veitingar, ýmist af  bar eða af framreiðslu borði. Þar er leirtau, glös, diskar og bollar en ekki er boðið upp á edhúsaðstöðu. Inn af barnum er samt svolítið borðpláss og vaskur. Dúkar sem passa á hringborðin eru leigður sér.

Hægt er að koma með matarveitingar í veislur en allar vínveitingar þarf að kaupa á staðnum.

Fullbúinn bar og bjór frá Ölvisholti
Fullbúinn er er í salnum og einnig er boðið upp á fjölbreytt úrval of bjór sem bruggaður er af brugghúsi Ölvisholts sem er í sama húsnæði.

Aðgengi er gott, bílastæði framan við húsið og hægt að ganga beint inn af stæði inn í salinn sem. gerir móttöku á utanaðkomandi matarveitingum auðvelda.

Veislur, fundir og viðburðir
Ölvisholt hentar fyrir fjölbreytt veisluhald og viðburði. Hentar fyrir fermingar, brúðkaup, afmæli og erfidrykkju. 

Einnig fyrir fyrirtækjaskemmtanir og hópa.

Salurinn er einnig góður fyrir fundi, námskeið og fyrirlestra.
©www.salir.is - afritun og endurbirting óheimil.

Ölvisholt Veislusalur
Grandatröð 4, 220 Hafnarfjöður
Sími: Birta símanúmer


Vinsamlega látið vita að upplýsingarnar koma frá á salir.is þegar haft er samband.

Kort

Fyrirspurn um þessa þjónustu

Hér getur þú spurst fyrir um bókanir, verð og nánari upplýsingar