Eden fyrir veislur og viðburði
Eden er frumlegur og spennandi fjölnota salur í einstöku umhverfi við Ártúnsbrekkuna í Elliðaárdalnum. Salurinn er staðsettur einu af sjö bogalaga rýmum þar sem áður voru kartöflugeymslur, en búið er að gera allt upp á nýstárlegan og einstaklega skemmtilegan hátt. Þar er nú starfandi fjölbreytt menningarstarfsemi.
Rýmið er braggalaga um 200 fermetrar að stærð með mikilli lofthæð og stórum gluggum í hvorum enda sem hleypa fallegri birtu og sólargeislum inn í rýmið.
Fremst er fatahengi og borð fyrir drykki og veitingar. Í miðju er hægt að raða upp borðum og stólum gjarnan sem langborð. Fer vel að vera með eitt langborð fyrir allt að 36 manns í miðju salarins eða tvö langborð hlið við hlið og tekur þá salurinn 72 manns í sæti. Einnig er hægt að raða upp standandi veislur og móttökur með standborðum og tekur þá salurinn allt að 90 manns.
Innst í rýminu er lítið eldhús með ísskáp, uppþvottavél og lausum hellum. Þar eru einnig salerni og sturta.
Í salnum er vandaður hátalari sem hægt er að tengjast með bluetooth. Framan við húsið eru næg gjaldfrjáls bílastæði.
Salurinn leigist með eða án veitinga
Mögulegt er að leigja salinn með eða án veitinga. Þegar veitingar eru keyptar á staðnum er það í samstarfi við Höfuðstöðina sem staðsett er i hinum enda hússins. Höfuðstöðin og Eden eru í góðu samstarfi.
Ef þú ert að leita að frumlegum sal til að skapa skemmtilega upplifun en samt að vera miðsvæðis í Reykjavík þá er Eden góður kostur.
Hentar vel fyrir brúðkaupsveislur, fermingarveislur, útskriftir og afmæli. Fyrir árshátíðar og fyrirtækjaviðburði.
Salurinn hentar einnig fyrir menningarviðburði og tónleika.
©www.salir.is - afritun og endurbirting óheimil.













