Veislusalur ÍR er vel búinn og rúmgóður salur, staðsettur að Skógarseli 12, örstutt frá Mjóddinni í Reykjavík.
Salurinn rúmar auðveldlega 80 manns í sæti og er þá nóg pláss fyrir veisluföng, myndabox og jafnvel skemmtikrafta og dansgólf.
Aðkoman er góð og framan við húsið eru næg bílastæði.
Salurinn er á annarri hæð með lyftu og með fallegu útsýni yfir Íþróttaleikvang ÍR. Einnig er hægt er að draga fyrir glugga að hluta eða alveg með fallegum gluggatjöldum.
Útgengt er á svalir sem snúa að íþróttasvæðinu og vera þar með grill sem leigt er sér.
Í anddyri er lítil setustofa með leðursófa og gott fatahengi.
Stólar eru svartir og borðin eru 18 talsins sem hægt er að raða upp á fjölbreyttan hátt. Dúka þarf borðin fyrir notkun en dúkar fylgja ekki.
Nýtt móttökueldhús
Nýlega var eldhúsaðstaðan öll endurnýjuð með tveimur stórum ísskápum fyrir matvæli, tveimur ísskápum fyrir drykki, tveimur ofnum, iðnaðar-uppþvottavél og góðum vinnuborðum. Einnig er þar stök hitahella og örbylgjuofn. Hægt er að leigja útigrill til að hafa á svölum.
Leirtau, hnífapör, glös og diskar fylgja með í leigunni.
Opið er er frá eldhúsinu inn í salinn með borði þar sem hægt er að bera fram veitingar. Einnig eru auka borð sem hægt er að nota undir veitingar inni í salnum.
Í salnum er einfalt Soundbox hljóðkerfi með Bluetooth tengingu ásamt hljóðnema sem tengist því. Þar er ræðupúlt, myndvarpi og sýningartjald.
Veislusalir ÍR er upplagður staður fyrir brúðkaupsveislur, fermingarveislur útskriftir og afmæli. Fyrir fyrirtækjaskemmtanir, þorrablót og haustfagnaði.
Salurinn hentar einnig vel fyrir fundi, námskeið og fyrirlestra.
Athugið að leigutaki þarf að vera a.m.k. 25 ára
Veisluhöldum skal lokið fyrir klukkan 01:00
Verðskrá 2026
Föstudagar: 95.000 (Salur afhentur kl. 18:30, fyrri afhending + 15.000)
Laugardagar: 110.000 (Salur afhentur kl. 10:00, fyrri afhending + 20:000)
Sunnudagar: 75.000 (Salur afhentur kl. 10:00, fyrri afhending + 20.000)
Virkir dagar: 45.000 (afhending 08:00 viðburði lokið fyrir kl. 15:00 - virkir dagar á undan rauðum degi leigjast eins og laugardagur.)
©www.salir.is - afritun og endurbirting óheimil.













