Að Sléttuvegi 15-17 er hlýlegur og fallegur veislusalur sem rúmar um 60 manns í sæti. Salurinn er á gróðursælum stað við Fossvoginn og snúa gluggar til suðurs sem myndar hlýja og góða birtu í salnum.
Gengið er inn um inngang framan við húsið frá bílastæði og þar er anddyri með setustofu og fatahengi.
Móttökueldhús
Í salnum er opið móttökueldhús með öllum helstu
heimilistækjum og borðbúnaði. Móttökueldhúsið nýtist vel til að bera fram drykki og veitingar.
Sófahorn er í salnum ásamt píanói og einföldu hljóðkerfi fyrir tónlist og ræðuhöld. Þar er einnig stór skjár á hjólastandi sem hægt er að draga fram í salinn.
Verönd
Á góðviðrisdögum er hægt að opna beint út á verönd þar sem er útibekkur, gasgrill, borð og stólar og stór grasflöt.
Fyrir veislur
Sólvogur hentar einstaklega vel fyrir fermingarveislur, skírnarveislur, erfidrykkju og útskriftarveislur. Einnig fyrir smærri brúðkaupsveislur og afmæli. Veislum skal þó vera lokið fyrir klukkan 23:00.
Fyrir fundi
Sólvogur er góður sem fundarsalur, fyrir til dæmis húsfundi eða námskeið eða kennslu.
Leigður út án veitinga
Salurinn er leigður út án veitinga. Þjónustuaðili fylgir salnum og aðstoðar við undirbúning og veisluhöld. Þjónustuaðili sér um þrif og frágang að veislu lokinni.
Mögulegt er að leigja dúka á staðnum.











