BRASA

Fallegur veislusalur, Turninn Kópavogur

200 manns í sæti
500 manns í standandi viðburði
Einkaherbergi fyrir 12 manns
Hægt að skipta rýminu upp í í minni sali
Falleg hönnun og einstök matarupplifun
Hljóðkerfi, hljóðnemi og svið í salnum
Vönduð veisluþjónusta
Næg bílastæði


Nánari upplýsingar

BRASA fyrir veislur og viðburði
BRASA er nýr og glæsilegur veitinga og viðburðasalur á 2. hæð í Turninum við Smáratorg í Kópavogi. Þar fer saman falleg hönnun, hlýlegt umhverfi og einstök matarupplifun.

Brasa tekur 200 manns til borðs og allt að 500 manns í standandi viðburðum.  Hægt er að skipta rýminu í minni sali fyrir smærri veislur eftir þörfum.

Í salnum er einfalt hljóðkerfi með hátölurum, hljóðnema og sviði sem hentar vel fyrir ræður, tónlist og létt skemmtiatriði.  Ef óskað er eftir frekari tæknibúnaði er boðið upp á sérsniðnar lausnir sniðnar að eðli viðburðarins.

Einkaherbergi fyrir 12 manns
Hjá BRASA er einnig hægt að bóka sérherbergi sem henta vel fyrir minni og meðalstórar samkomur. svo sem fundi, afmæli eða einkakvöldverði.  Rýmið tekur allt að 12 gesti í sæti og býður uppá persónulega, hlýlega og einstaka upplifun. Hver viðburður fær sinn sérsniðna matseðil.

Veisluþjónusta
Á BRASA er boðið upp á vandaðar veitingar og veisluþjónustu. Athugið að salurinn er aðeins leigður út með veitingum.

Brúðkaup
Fallegt umhverfi, persónuleg og vönduð veitingaþjónusta. Séð er um mat, drykki og umgjörð svo dagurinn endurspegli ykkar óskir og þið getið notið augnabliksins til fulls.

Árshátíðir
Fullkominn Aðstaða fyrir eftirminnileg árshátíð eða fyrirtækjaviðburð.

Einkasamkvæmi
Afmæli, einka kvöldverðir og sérstök tilefni fá persónulega og hlýlega umgjörð hja BRASA.
Einnig er hægt að bóka sérherbergið fyrir allt að 12 gesti fyrir minni samkomur.

Fermingarveislur
Glæsileg umgjörð fyrir stóran dag. BRASA býður upp á vandaðar veitingar og hlýlega þjónustu sem hentar bæði fermingarbörnum og gestum á öllum aldri.


BRASA
Smáratorg 3, 200 Kópavogur
Sími: Birta símanúmer


Vinsamlega látið vita að upplýsingarnar koma frá á salir.is þegar haft er samband.

Kort

Fyrirspurn um þessa þjónustu

Hér getur þú spurst fyrir um bókanir, verð og nánari upplýsingar