Hola Mathús

Glæsilegur veislusalur - Golfskálinn Urriðavelli

110 manns til borðs
200 manns í standandi veislur
Stórir gluggar, falleg birta og útsýni
Einstakelga fallegt og gróið umhverfi
Rúmgott anddyri og bar í salnum
Hljóðkerfi fyrir tal og tónlist og flatskjár
Vandaðar veitingar frá Hola Mathús
Aðgengi fyrir hjólastóla og næg bílastæði


Nánari upplýsingar

Golfklúbburinn Oddur á Urriðavelli í Garðabæ er með einstaklega bjartan og fallegan veislusal til leigu. 

Salurinn tekur um 110 manns til borðs og um 200 manns í standandi veislur og móttökur og aðstaða til veisluhalds er mjög góð.

Húsið stendur hátt á grónum stað með fallegu útsýni yfir bæinn og Faxaflóann. Umhverfis er stór verönd með útihúsgögnum og þar er gott aðgengi og næg bílastæði.

Þægileg húsgögn eru í salnum við hringborð eða langborð eftir óskum.

Hola Mathús
Veitingastaðurinn og veisluþjónustan Hola Mathús
sér um allar veitingar í salnum. Þar er lögð áhersla á að vinna mat frá grunni og bjóða upp á spennandi framsetningu. Hvort um sé að ræða smárétti, hlaðborð eða margréttaða gala kvöldverði

Salurinn leigist aðeins með veitingum

Salurinn hentar vel fyrir fyritækjahópa, brúðkaup, fermingarveislur, afmæli, erfidrykkjur, jóla og villibráðakvöld.

Staður fyrir hópa sem vilja koma saman í einstöku umhverfi og njóta góðra veitinga.

Athugið að salurinn er ekki leigður út á sumrin.

Hola Mathús
Urriðavöllur 210 Garðbær
Sími: Birta símanúmer


Vinsamlega látið vita að upplýsingarnar koma frá á salir.is þegar haft er samband.

Kort

Fyrirspurn um þessa þjónustu

Hér getur þú spurst fyrir um bókanir, verð og nánari upplýsingar