Í Stakkahlíð 1, þar sem Listaháskóli Íslands er staðsettur er einstakur veislu- og viðburðasalur í umsjón Veisluþjónustu Bragðlauka sem sjá um mötuneytið á staðnum.
Forsalur
Komið er inn í stóran forsal þar sem gestir geta safnast saman fyrir borðhald og fengið drykk eða léttar veitingar og jafnvel verð með lifandi tónlist.
Þar er gott pláss til að koma fyrir myndatökuvegg, standborðum og skjá fyrir myndasýningar eða vera með kynningar eða sýningu sem tengist viðburði.
Forsalurinn er aðskilinn frá veislusalnum með bogadregnum glervegg sem gefur skemmtilega stemningu í salinn.
Veislusalurinn
Veislusalurinn er sérlega bjartur, rúmgóður og fallegur og rúmar 130 manns í sæti. Hann er með rúðum allan hringinn og stór þakgluggi í miðjunni gefur fallega birtu inní salinn.
Hægt er að ganga beint út á verönd með bekkjum og borðum til að njóta veðurblíðu á sumrin.
Litríkir stólar og sambland af hringborðum og langborðum gefa möguleika á skemmtilegri uppröðun.
Veisluþjónusta
Í salnum er stórt móttökueldhús frá veisluþjónustu Bragðlauka og er salurinn aðeins leigður út með veitingum.
Veislusalurinn Stakkahlíð er sérlega vel staðsettur í borginni, í göngufæri við miðbæinn en samt með nægum bílastæðum við húsið. Einnig er Háteigskirkja staðsett rétthjá fyrir þá sem nýta sér athafnir þar.
Veislusalinn Stakkahlíð hentar vel fyrir þá sem vilja fallegan og rúmgóðan sal á góðum stað miðsvæðis í Reykjavík.
Brúðkaupsveislur, fermingarveislur, erfidrykkjur, útskriftaveislur. Fyrirtækjaviðburðir, fundir og kynningar, árshátíðar svo eitthvað sé nefnt.
Allar nánari upplýsingar veita Bragðlaukar Veisluþjónusta með því að senda þeim fyrirspurn.









