Bragðlaukar Veislusalur

Hlýlegur og rúmgóður salur með útsýni

100 manns í sæti
130 manns í standandi veislur
Hlýlegur og rúmgóður salur
Fallegur bar í salnum
Hljóðkerfi fyrir tónlist
Veisluþjónusta á staðnum
Næg bílastæði
Fallegt útsýni


Nánari upplýsingar

Bragðlaukar veislusalur
Veitingastaðurinn Bragðlaukar er staðsettur í Urðarhvarfi í Reykjavík. Þar er rekinn vinsæll veitingastaður sem er opin á virkum dögum. Um helgar er staðurinn leigður út fyrir veislur, viðburði og fundi.

Salurinn leigist með veitingum.

Hlýleg og falleg lýsing í loftum, mikil lofthæð og fallegar innréttingar einkenna salinn og stórir gluggar sem vísa út yfir borgina og Esjuna gera útsýnið alveg einstakt. Hægt er að opna út á mjóar svalir framan við salinn til að njóta veðurblíðu og góðviðrisdögum.

Forrýmið er með stórum bar, háum borðum og barstólum þar sem gestir geta safnast saman áður en borðhald hefst. Í forrýminu er góð aðstaða til að bera fram mat og drykki.

Bragðlaukasalurinn tekur 100 manns í sæti og um 130 manns í standandi veislur.

Hægt er að raða borðum upp á fjölbreyttan hátt eftir tilefni. Borðin eru svört með þægilegum stólum og njóta sín vel hvort sem er með eða án dúka, en dúkar eru leigðir sér.

Góð aðkoma er að salnum og næg bílastæði framan við húsið.

Salurinn er bæði mjög rúmgóður og hlýlegur og hentar því fyrir bæði stærri og minni veislur. Brúðkaup, fermingarveislur, afmæli. Fyrirtækjaveislur og viðburði, árshátíðar, jólahlaðborð svo eitthvað sé nefnt.

©www.salir.is afritun og endurbirting óheimil


Bragðlaukar Veislusalur
Urðarhvarf 4, 203 Kópavogur
Sími: Birta símanúmer


Vinsamlega látið vita að upplýsingarnar koma frá á salir.is þegar haft er samband.

Kort

Fyrirspurn um þessa þjónustu

Hér getur þú spurst fyrir um bókanir, verð og nánari upplýsingar