Elliði veislusalur

Veislur í Elliðaárdal

Einstakt umhverfi og falleg náttúra
60 manns til borðs
120 manns í standandi veislur
Stór verönd með borðum og stólum
Miðsvæðis í Reykjavík
Aðeins leigður með veitingum
Næg bílastæði
Hægt að bæta við tjaldi fyrir stærri veislur
Hljóðkerfi fyrir tal og tónlist
Skjávarpi


Nánari upplýsingar

Elliði í Elliðaárdal
Við Elliðaárstöð í Elliðaárdal er kaffihúsið og veislusalurinn Elliði. Staðurinn er umlukin fallegri náttúru, mikið af trjágróðri og fallegum byggingum Elliðaárstöðvar.

Elliðaáin liðast fallega fram hjá húsum sem gerir umhverfið einstaklega myndrænt og fallegt.

Bar, glerskáli, veislusalur og verönd
Elliði er í raun þrjú samtengd hús, bar og móttaka, glerskáli og veislusalur. Framan við salinn er rúmgóð verönd með borðum og stólum þar sem hægt er að ganga út og njóta sólar á góðviðrisdögum.

Einnig er góð aðstaða aftan við húsin þar sem hægt er að bæta við veisluaðstöðu og veislutjaldi fyrir stærri veislur og viðburði.

60 manns til borðs og 120 í standandi veislur
Veislusalurinn rúmar um 60 manns til borðs en staðurinn allur hentar fyrir allt að 120 manns í standandi veislur.

í glerskálanum er ýmist hæg að vera með borð og stóla, stilla upp veitingum eða vera með opið rými fyrir fordrykk.

Frá klukkan 11:00 - 17:00 er þar rekið kaffihús og veitingastaður með léttum veitingum. En utan opnunartíma er hægt að leigja salinn fyrir veisluhöld og viðburði.

Aðeins leigður með veitingum
Elliði er einungis leigður með veitingum og veisluþjónusta staðarins sér um að framreiða veislurétti, hlaðborð og smárétti eftir þínum óskum.

Elliðaárdalurinn er sannarlega einstaklega áhugaverður fyrir afslappað umhverfi,  náttúru og fegurð en samt miðsvæðis í Reykjavík.

Elliði hentar vel fyrir útskriftir, brúðkaupsveislur, fermingarveislur, afmæli og erfidrykkju. Einnig fyrir fyrirtækjahópa, jólahlaðborð, þorrablót, árshátíðar og vorfagnaði.

©www.salir.is - afritun og endurbirting óheimil.

Elliði veislusalur
Rafstöðvarvegur 10, 110 Reykjavík
Sími: Birta símanúmer


Vinsamlega látið vita að upplýsingarnar koma frá á salir.is þegar haft er samband.

Kort

Fyrirspurn um þessa þjónustu

Hér getur þú spurst fyrir um bókanir, verð og nánari upplýsingar