Stuð fundarrými
Fundarrýmið Stuð er staðsett á 2. hæð í Gestastofu Elliðaárstöðvar.
Í rýminu er skjár, tússtafla og einfaldur fundarbúnaður.
Á hæðinni er sameiginleg kaffiaðstaða með kaffi, heitum drykkjum og sódavatni, sem fylgir með í leigu.
Gott aðgengi er að húsinu og næg bílastæði.
Gestastofa Elliðaárstöðvar
Í Gestastofu Elliðaárstöðvar er hægt að leigja fjölbreytt rými fyrir fundi og vinnustofur í orkuríku umhverfi. Stutt er í endurnærandi útivist og til að fullkomna daginn er hægt að bæta við hópefli, upplifunargöngu og leiðsögn um svæðið.
Fallegt umhverfi, kyrrð og nálægðin við náttúruna og Elliðaá myndar einstaklega notalega og afslappaða umgjörð um Gestastofuna.
Elliði Kaffihús
Við hliðina á Gestastofu er Elliði kaffihús. Opið er alla daga utan mánudag milli kl. 11:00-17:00. Hægt er að panta morgun- eða síðdegishressingu frá þeim.
Fari fjöldinn yfir 30 manns er hægt að panta ráðstefnu eða fundarveitingar á sér tilboði.






