Skálinn Gufunesi

Veislusalur og viðburðasalur í Gufunesi

• 200 manns í sæti
• 300 manns í standandi viðburði
• Leigist með eða án veitinga
• Næg bílastæði beint fyrir framan húsið
• Frábært aðgengi
• Spennandi umhverfi
• Færanlegur bar
• Dansgólf og færanlegt svið
• Fatahengi
• Veisluþjónusta á staðnum


Nánari upplýsingar

Skálinn Gufunesi - stutt frá miðborginni
Skálinn Gufunesi sem áður hét Viðburðaverksmiðjan er einstakur veislu- og viðburðasalur í skapandi umhverfi Gufuness í Reykjavík. Þar mætast listir og menning í lifandi hverfi sem skapar sérstaka stemningu fyrir viðburði af ýmsu tagi. Þrátt fyrir að salurinn sé í rólegu og þægilegu umhverfi er ann aðeins í nokkurra mínútna akstursfjarlægð frá miðborg Reykjavíkur með frábæru aðgengi og nægum bílastæðum.

Salurinn er rúmgóður og sveigjanlegur og hægt að aðlaga uppsetningu hans að mismunandi tegundum viðburða.  Hann tekur á móti 20 - 200 gestum í sitjandi veislum og allt að 300 gestum í standandi viðburðum með möguleika á fjölbreyttri uppsetningu eftir tilefni.

Rýmið hentar sérstaklega vel fyrir veislur, fyrirtækjaviðburði, tónleika og menningarviðburði t.d. árshátíðir, afmæli, fermingar, brúðkaup, erfidrykkjur, vinnustaðapartý, árgangamót sem dæmi.

Dansgólf og færanlegt svið
Hægt er að setja upp dansgólf og færanlegt svið sem gerir salinn að spennandi og sveigjanlegum vettvangi meðal annars fyrir tónlist, uppistand og aðra sviðsviðburði, allt eftir tilefni hverju sinni. 

Tekið er á móti gestum í rúmgóðu anddyri með fatahengi. Þaðan er gegnið inn í salinn og hægt að hafa bar eða móttöku við innganginn í salinn. Einnig er hægt að hafa færanlegan bar fyrir veitingar sem auðveldar framreiðslu á vínveitingum og öðrum drykkjum

Leigist með eða án veitinga
Salurinn er er leigður út með eða án veitinga, allt eftir óskum hvers og eins. 

Veisluþjónusta
Skálinn Gufunesi starfrækir öfluga veisluþjónustu sem getur séð um veitingar í veislur stórar sem smáar. 

Aðkoma er mjög góð og næg bílastæði eru beint fyrir framan salinn , sem gerir gestum auðvelt að komast að og frá viðburðum.

Skálinn Gufunesi er kjörinn vettvangur fyrir afmæli, árshátíðir, böll, tónleika. menningarviðburði og aðrar samkomur þar sem markmiðið er að skapa eftirminnilega upplifun ái lifandi og skapandi umhverfi. 

©www.salir.is - afritun og endurbirting óheimil.



Skálinn Gufunesi
Gufunesvegur 17, 112 Reykjavík
Sími: Birta símanúmer


Vinsamlega látið vita að upplýsingarnar koma frá á salir.is þegar haft er samband.

Kort

Fyrirspurn um þessa þjónustu

Hér getur þú spurst fyrir um bókanir, verð og nánari upplýsingar