Bjartir og góðir fundarsalir til leigu miðsvæðis í Reykjavík, í nýinnréttuðu húsnæði á Suðurlandsbraut 30.
Staðsetning og aðgengi
Salirnir eru á 2. hæð í bakhúsinu á Suðurlandsbraut 30 og inngangur er beint af efra bílastæðinu á bakvið. Einnig er hægt að leggja á neðra bílastæðinu. Strætóstöðvar eru framan við húsið, beggja vegna Suðurlandsbrautar.
Þægileg aðkoma er fyrir jafnt gangandi, hjólandi sem akandi fundargesti. Hjólastólaaðgengi er að sölunum.
Salirnir
Salirnir henta vel fyrir fundi, ráðstefnur, fyrirlestra, námskeið og kennslu. Þeir geta einnig verið góður kostur ef leigja þarf sali eða vinnurými á föstum tímum, s.s. vikulega eða oftar.
Keilir 22 manna
Salurinn er um 20 fermetrar að grunnfleti og tekur allt að 22 gesti í bíóuppstillingu. Salurinn er bjartur og snyrtilegur með góðri loftræstingu. Tölvu- og fjarfundarbúnaður og þráðlaust net er í salnum, ásamt upplýsingaskjá (led) sem getur tengst fartölvu.
Helgafell 22 manna
Salurinn er um 20 fermetrar að grunnfleti og tekur allt að 22 gesti í bíóuppstillingu. Salurinn er bjartur og snyrtilegur með góðri loftræstingu. Þráðlaust net er í salnum, ásamt upplýsingaskjá (led) sem getur tengst fartölvu.
Salurinn er ríflega 100 fermetrar að grunnfleti og tekur allt að 120 gesti í bíóuppstillingu. Salurinn er bjartur og snyrtilegur með góðri loftræstingu. Þráðlaust net, tölvu- og fjarfundarbúnaður er í salnum, ásamt 98 tommu upplýsingaskjá (led) sem getur tengst fartölvu og Yealink fundarsalalausn.
Salurinn er ríflega 40 fermetrar að grunnfleti og tekur allt að 50 gesti í bíóuppstillingu. Salurinn er bjartur og snyrtilegur með góðri loftræstingu. Tölvu- og fjarfundarbúnaður og þráðlaust net er í salnum, ásamt 85 tommu upplýsingaskjá (led) sem getur tengst fartölvu og Yealink fundarsalalausn.
Salurinn er um 20 fermetrar að grunnfleti með góðu fundarborði þar sem pláss er fyrir 12 gesti. Salurinn er bjartur og snyrtilegur með góðri loftræstingu. Tölvu- og fjarfundarbúnaður og þráðlaust net er í salnum, ásamt upplýsingaskjá (led) sem getur tengst fartölvu.
Útleiga
Salirnir eru til útleigu alla daga vikunnar, jafnt að degi til sem kvöldi. Leigutími er að jafnaði 2 klst. Fast tímagjald er innheimt fyrir hverja byrjaða klukkustund umfram leigutíma.
Innifalið í leigu er; fundarsalur, stólar, borð fyrir fundarstjóra og fráleggsborð, afnot af upplýsingaskjá og borðtölvu.
Ef óskað er eftir að nota fjarfundarbúnað þarf að taka það fram þegar gengið er frá salarleigu og fær leigutaki þá leiðbeiningar um virkjun búnaðar.
Greitt er sérstaklega fyrir afnot af fjarfundarbúnaði.
Hægt er að fá kaffiuppáhellingu milli kl. 8-17 á virkum dögum.
Sjálfsali með drykkjum og fleiru er til staðar.
Gott aðgengi er að salernisaðstöðu á hæðinni og hjólastólaaðgengi er til staðar.
Við skil á fundarsölum er miðað við að frágangur sé með sama hætti og þegar tekið var við sölunum og umgengni þrifaleg.






